Innlent

Bílddælingur segir upp 50 manns

Um fimmtíu starfsmönnum Bíldælings var sagt upp störfum í gær. Bæjarstjóra Vesturbyggðar er brugðið en hann fékk að vita af uppsögnunum frá svæðisvinnumiðluninni í gær. Um eitthundrað störf eru á Bíldudal og lætur því nærri að annar hver vinnandi maður á staðnum hafi fengið uppsagnarbréf. Á næstu viku verður starfsemi Bílddælings endurskoðuð og forsendur rekstursins endurmetnar. Fyrirtækið er stærsti vinnuveitandinn í þorpinu en þar búa rúmlega 200 manns. Guðmundi Guðlaugssyni, bæjarstjóra Vesturbyggðar, var brugðið við fréttirnar. Hann segir að vonir séu bundnar við það að starfsemin haldi áfram en honum skiljist að næsti mánuður verði notaður til þess að meta það mál. Hann segir aðrar lausnir með atvinnu á Bíldudal ekki vera í sjónmáli enda séu þetta alveg nýjar fréttir. En telur hann úthlutun byggðarkvóta frá Vesturbyggð hafa eitthvað með erfiðleika Bílddælings að gera? Guðmundur segir að ekki sé að hægt að stýra þeim byggðarkvóta sem úthlutað sé af hálfu sveitarfélagsins til ákveðinna fyrirtækja því skýrar reglur séu um slíkt á vegum sjávarútvegsráðuneytisins. Úthluta verði þeim kvóta á báta og langstærstur hluti byggðarkvótanns sem úthlutað hafi verið í sveitarfélaginu nú hafi farið til Bíldudals og hann reikni með að flestir útgerðaraðilar hafi samið við Bílddælinga um vinnslu aflans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×