Innlent

Menntaverðlaun veitt í kvöld

Forseti Íslands veitir Íslensku menntaverðlaunin í kvöld í fyrsta sinn. Athöfnin fer fram í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Verðlaunin verða veitt í fjórum flokkum: skólum sem sinnt hafa vel nýsköpun og farsælu samhengi í fræðslustarfi, kennurum sem skilað hafa merku ævistarfi eða skarað fram úr, ungu fólki sem í upphafi síns kennsluferils sýnir hæfileika og leggur alúð við starfið og höfundum námsefnis sem stuðlað hafa að nýjungum í skólastarfi. Verðlaunahátíðin hefst klukkan 18.30 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×