Innlent

Verð á heitu vatni lækkað í dag

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur ákveðið að lækka verð á heitu vatni til notenda á höfuðborgarsvæðinu um 1,5 prósent og kemur sú ákvörðun til framkvæmda í dag. Frá þessu greinir Orkuveitan í tilkynningu í dag. Þar segir einnig að hækkun vísitölu undanfarna mánuði hafi numið um 3,5 prósentum en vegna aukinnar sölu á heitu vatni á undanfarna mánuði hafi verið ákveðið að taka þá hækkun ekki með í reikninginn. Heildarlækkun á heitu vatni til notenda nemi því 5 prósentum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×