Innlent

Rétt staðið að ráðningum

Umboðsmaður Alþingis hefur nú úrskurðað í máli tveggja umsækjanda sem töldu sig hlunnfarna við ráðningar í stöður hjá lögreglustjóranum í Reykjavík. Samkvæmt úrskurðinum telur umboðsmaður ólíklegt að þeir annmarkar, sem þó hafi verið á undirbúningi málsins, ættu að leiða til ógildingar á ráðningu þeirra sem störfin hlutu. Einhverja formgalla sá umboðsmaður á framkvæmd ráðninganna og í úrskurðinum eru ábendingar um hvað betur hefði mátt fara. Á vef lögreglunnar kemur fram að farið verði yfir þær ábendingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×