Innlent

Farþegum fjölgaði um 7%

Farþegum um Leifsstöð fjölgaði um sjö prósent í maímánuði miðað við sama tíma í fyrra, eða úr 134 þúsund farþegum í 144 þúsund. Þá hefur farþegum sem millilenda á Keflavíkurflugvelli á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgað um nærri átta prósent. Það sem af er árinu hefur farþegum um Leifsstöð fjölgað um níu prósent borið saman við sama tímabil í fyrra. 562 þúsund farþegar hafa farið um flugstöðina það sem af er árinu en á sama tíma á síðasta ári voru þeir 517 þúsund.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×