Líkur á kólnandi veðri í Evrópu 5. desember 2005 04:00 Trausti Jónsson veðurfræðingur segir mælingar á Golfstraumnum hafa staðið nokkuð stutt yfir.
Breytingar á Færibandinu svonefnda, hafstraumi sem ber hlýjan sjó á norðurslóðir og kaldan aftur að miðbaug, eru mun hraðari en talið var og kunna að valda stórfelldri kólnun í Evrópu, samkvæmt vísbendingum í rannsókn sem Harry Bryden, breskur haffræðingur hefur staðið fyrir. Ralf Döscher á sænsku veður- og haffræðistofnuninni segir Bryden og kollega hans hafa mælt hafstrauma á mismunandi dýpi þvert yfir Atlantshafið allt frá árinu 1957. Litlar breytingar hafi komið fram allt til ársins 1998, en eftir þann tíma séu þær stórfelldar. Erlendir fréttamiðlar hafa svo eftir Bryden að þetta sé í fyrsta sinn sem merkja megi svo hraðar breytingar í þessa veru að þeirra verði vart á mannsævi. The Guardian hefur eftir honum að haldi þessi þróun áfram megi búast við kólnun veðurfars í norðanverðri Evrópu um eina gráðu á áratug. Um leið bendir hann á að þetta víxlstreymi hlýrri og kaldari sjávar hafi á ísöld stöðvast alveg. Vísbendingarnar sem nú eru komnar fram renna stoðum undir kenningar um að bráðnun íshellunnar á norðurskautinu og jökla á norðurslóðum dragi úr seltu sjávar, sem verði til þess að kaldur sjór sökkvi síður og berist því ekki aftur suður undir miðbaug. Bryden bendir þó sjálfur á að niðurstöður hans sanni ekki að breyting sé að eiga sér stað heldur þurfi að stunda mælingar í mörg ár í viðbót. Fjallað er um rannsóknina í nýjasta hefti tímaritsins Nature. Trausti Jónsson veðurfræðingur tekur undir að mælingarnar á hafstraumum sem vísað sé til hafi staðið nokkuð stutt yfir. Menn hafa mælt þarna botnstrauma með meiri nákvæmni en áður hefur verið gert, en eldri gögn eru gisin og menn vita ekki í raun hver náttúrulegur breytileiki þeirra gagna sem verið er að mæla er. Hann segir niðurstöður Brydens vera viðbót í hrúgu misvísandi rannsókna og allt of snemmt sé að draga af þeim ályktanir. En þeir eru hrifnir af veðurfarskrísum þarna hjá Nature og sjálfsagt vekur þetta athygli, segir Trausti.
Innlent Mest lesið „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent „Algjörlega alveg út í hött“ Innlent Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Innlent Skipar Ísraelum að hætta að sprengja Erlent Umferðin færist inn á íbúðagötur Innlent Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast Innlent Diddy í fimmtíu mánaða fangelsisvist Erlent Vann á öllum deildum leikskólans Innlent Rannsaka mögulega stunguárás Innlent Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Innlent Fleiri fréttir Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Rannsaka mögulega stunguárás Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast „Af hverju ertu svona í framan?“ „Algjörlega alveg út í hött“ Umferðin færist inn á íbúðagötur Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Dugar ekki lengur að dorga og nú þurfi að kasta út neti Vann á öllum deildum leikskólans Segja Rússa heyja stríð við Vesturlönd og síðustu ævidagarnir á Grund „Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing“ Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Fresta framkvæmdum vegna veðurs Sýnist komið að seinni hluta í eldsumbrotum í Sundhnúksgígaröðinni Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Varaformannsslagur í Miðflokknum: Öll vinir og „peppuð“ fyrir landsþingi Stöðfirðingum enn ráðlagt að sjóða vatn vegna mengunar Tillögurnar í leikskólamálum séu vonbrigði og uppgjöf Jörð skelfur í Krýsuvík og Þjóðaröryggisráð fundaði í morgun Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Snorri etur kappi við Bergþór og Ingibjörgu Hafnaði kæru Sameindar vegna Konukots í Ármúla Ingibjörg tekur slaginn við Bergþór Skjálftahrina við Krýsuvík og Kleifarvatn Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Bergþór vill verða varaformaður Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Sjá meira