Lífið

Svava opnar svala herrafataverslun

Svava Johansen er hæstánægð með nýju herrafataverslunina.
Svava Johansen er hæstánægð með nýju herrafataverslunina.

Fyrirtæki Svövu Johansen, NTC, sem rekur meðal annars verslanirnar Gallerí Sautján, Smash og Deres, opnaði um síðustu helgi glænýja herrafataverslun sem ber nafnið Kultur menn. Nýja verslunin er staðsett á Laugavegi 89 við hliðina á Galleri Sautján.

"Það hefur gengið alveg frábær­lega vel síðan við opnuðum og við heyrum frá fólki að þetta sé búð sem hefur vantað á Íslandi. Inni í NTC erum við auðvitað með verslanir eins og Evu fyrir konur á þessum aldri en það hefur vantað aðeins klassískari og vandaðri vörur fyrir karlmenn," segir Svava. Kultur menn selja jakkaföt frá Paul Smith ásamt skófatnaði frá Lloyds og fleiri merkjum.

"Þetta er eiginlega okkar svar við Kultur kvenbúðinni og er jafnframt verslun fyrir þá sem vilja fjárfesta í örlítið dýrari og vandaðri fatnað." Að sögn Svövu er hér um að ræða verslun sem sett er til höfuðs örlítið öðruvísi markhóp en til dæmis Gallerí Sautján. ,,Þrátt fyrir að þar sé einnig fatnaður fyrir yngra fólk þá er það samt þannig að við erum að miða við að markhópurinn okkar sé á aldrinum 25 til 45 ára."

Svava segir að úrvalið í versluninni sé mikið. "Við erum með mikið af flottum jakkafötum ásamt því að hafa einnig hversdagsfatnað á boðstólum. Við leggjum mikla áherslu á góða þjónustu og gæðavörur á sanngjörnu verði. Þetta er í rauninni bara smart búð með vönduðum fötum fyrir flotta karlmenn á öllum aldri."

Aðspurð um verðið á helstu jakkafötunum segir Svava það vera nokkuð misjafnt. "Ef við tökum til dæmis jakkaföt frá Paul Smith þá erum við að tala um verð allt upp í 55 þúsund krónur. Síðan er hægt að fá mjög góð jakkaföt á um 25 þúsund krónur ef menn vilja það" segir Svava að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.