Brýnt að flugvöllur verði við sjúkrahúsið 2. desember 2005 03:30 "
Það er lífsnauðsynlegt að hafa sjúkraflugvöll við hátæknisjúkrahúsið," segir Benóný Ásgrímsson, yfirflugstjóri hjá Landhelgisgæslunni. "Um 500 sjúkraflug eru farin á ári og þar af sinna þyrlur um hundrað og því teldi ég það mikið ógæfuspor að ætla að reyna að sinna öllu sjúkraflugi með þyrlum," bætir hann við. "Það er einnig mín skoðun að það væri mikið óréttlæti gagnvart landsbyggðarfólki að á sama tíma og eytt er tugum milljarða af fé allra landsmanna í hátæknisjúkrahús sé aðgengi landsbyggðarmanna skert til þess að komast í hið sama sjúkrahús. Þar af leiðandi er verið að auka hættuna á enn meiri skaða þegar slys eða veikindi ber að á landsbyggðinni og verið að auka á þjáninguna sem verður í slíkum tilfellum. Fjármunirnir færu þannig í að bæta heilbrigðismál Reykvíkinga meðan þau versnuðu fyrir fólk úti á landi," segir Benóný. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunar, segir það rétt hjá Benóný að ekki sé hægt að sinna öllu sjúkrafluginu með þyrlum en vill þó ekki taka afstöðu til þess hvort flugvöllurinn verði að vera áfram í Vatnsmýrinni ef hátæknisjúkrahúsið verði byggt við Hringbrautina. Benóný segir að málið hafi verið hugsað upphaflega í þessu samhengi: "Ég man ekki betur en að ein af forsendunum fyrir því að sjúkrahúsið ætti að rísa við Hringbraut en ekki í Fossvogi hafi verið sú að þar væri gott aðgengi fyrir sjúkrabíla og sjúkraflug," segir hann. "Það skiptir kannski ekki höfuðmáli hvort flugvöllurinn sé í Vatnsmýrinni eða á Lönguskerjum en ef hann er færður til Keflavíkur hlýtur það að þýða að sjúklingar verða lakar settir sem hingað þurfa að leita, það er alveg augljóst," segir Magnús Pétursson, forstjóri Landspítalans. Hann telur það ekki raunhæft að sinna öllu sjúkraflugi með þyrlum enda væri það allt of dýrt. Jóhannes M. Gunnarsson, lækningaforstjóri hjá LSH, tekur í sama streng. "Það er rétt hjá Landhelgisgæslunni, þyrlur eru mun hægfleygari og mörgu leyti óhagstæðari."
Innlent Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira