Framsókn undir 4% í Reykjavík 6. júlí 2005 00:01
Framsóknarflokkurinn mælist með 3,9 prósenta fylgi að meðaltali í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur samkvæmt könnun Gallup frá því í byrjun mánaðarins. Fylgi flokksins í Reykjavík hefur því lækkað um tæpt prósentustig frá því í könnun Gallup í maí en þá mældist fylgi hans í Reykjavík í sögulegu lágmarki eða 4,6 prósentum. Aðrir flokkar mælast með svipað fylgi og í könnun Gallup frá því í maí nema Sjálfstæðisflokkurinn sem hækkar úr 38,4 prósentum í rúm 40 prósent. Samfylkingin fer úr 36,7 prósentum í 36,6 prósent, Vinstri grænir fara úr 17,1 prósenti niður í 16,8 prósent og Frjálslyndi flokkurinn fer úr 2,7 prósentum niður í 1,8 prósent. Fylgi Frjálslynda flokksins hefur nokkrum sinnum mælst lægra en nú en lægst mældist það í september 2002 eða 1,6 prósent. Fylgi Framsóknarflokksins hefur lækkað jafnt og þétt á landsvísu en í könnun Gallup frá því í maí mældist fylgi flokksins í sögulegu lágmarki eða 8,5 prósent á landsvísu en flokkurinn mældist með 8,7 prósentustiga fylgi í könnun Gallup nú. Framsóknarflokkurinn hefur hins vegar ekki mælst með svo lágt fylgi í Reykjavík áður í könnun Gallup. Samkvæmt gögnum sem Fréttablaðið hefur fengið og unnin hafa verið úr könnunum Gallup hefur fylgi hans í sumar ekki verið lægra síðan það mældist 4,9 prósent í júlí 2004. Í kosningunum í maí 2003 fékk flokkurinn um 11,5 prósenta fylgi í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur að meðaltali og er núverandi fylgi hans því rétt um þriðjungur þess fylgis eða 7,6 prósentustigum minna en í kosningunum. "Það er augljóst að við höfum verk að vinna. Kosturinn við þessa stöðu er sá að frá henni getur leiðin ekki legið nema upp á við og þangað stefnum við," segir Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Fréttir Innlent Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Erlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Innlent Fleiri fréttir Willum vill ekki verða formaður Framsóknar Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Sjá meira