Innlent

Landsvirkjun býður tvö verk út

Landsvirkjun óskaði í gær eftir tilboðum í tvær stórframkvæmdir vegna Kárahnúkavirkjunar. Annað verkefnið er gröftur og gangagerð vegna botnrásar við Jökulsá í Fljótsdal vegna væntanlegrar Ufsarstíflu. Þau göng eiga að vera 57 metra löng og sjö metra breið. Hitt verkefnið er strengplæging fyrir Hraunveitur og felst í að leggja og tengja átta kílómetra langan rafstreng milli Ufsarstíflu og Kelduárlóns, ásamt lagningu ídráttarröra fyrir ljósleiðara. Nánari upplýsingar má finna á www.landsvirkjun.is.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×