Samþykki áströlsk gildi eða fari 24. ágúst 2005 00:01
Þeir sem ekki vilja samþykkja áströlsk gildi geta hunskast burt, segir ástralski menntamálaráðherrann Brendan Nelson. Þessi ummæli hafa valdið nokkrum úlfaþyt hjá áströlskum múslimum, en Nelson lét þessi orð falla í sambandi við skipulagða fundi með forsvarsmönnum múslima í landinu. Nelson lýsti því yfir í dag að hann ætlaði að funda með Samtökum múslima um hvernig best væri að kenna íslömskum börnum áströlsk gildi. Og hann talaði enga tæpitungu. „Geti fólk ekki stutt, viðurkennt, tileinkað sér og kennt áströlsk gildi getur það farið," sagði Nelson. Forsvarsmenn ástralskra múslíma voru ekki par ánægðir með þetta orðfæri menntamálaráðherrans og fannst orðum hans beint gegn sér að ósekju. Silma Ihran í Menntaráði múslíma sagði að allir þyrftu að kenna sömu gildi, áströlsk gildi. Henni þætti miður að Nelson beindi spjótum sínum að íslömskum skólum. Hanedfa Buckley, íslamskur nemi, benti á að yfirvöld þyrftu að finna að íslömsk ungmenni væru eins og Ástralar og hefðu sömu gildi og aðrir Ástralar því þau væru Ástralar. Stúdentarnir viðurkenndu þó að fyrir suma væri erfitt að samræma trúna og þjóðerniskenndina. Forsætisráðherrann John Howard hefur stutt Nelson í málinu og sagt að bæði moskur og íslamskir skólar verði vaktaðir til að koma í veg fyrir að öfgamenn fái þar frið til að hvetja til hryðjuverka. Howard segir enn fremur að að ytfirvöld hafi rétt á að vita hvort hvatt sé til hryðjuverka innan íslamska samfélagsins. Ástralar ætla sem sagt ekki að verða eftirbátar Breta í baráttunni við hryðjuverkaógnina en aðferðir beggja eru greinilega umdeildar.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira