Á fimmta tug fórst í flugslysi 24. ágúst 2005 00:01
Að minnsta kosti 41 lést þegar þota af gerðinni Boeing 737-200 nauðlenti í Amazon-frumskóginum í Perú á þriðjudagskvöld. 56 þar til viðbótar voru fluttir á sjúkrahús, misalvarlega slasaðir. Sumir fengu að fara heim að skoðun lokinni. Vélin, sem var í eigu perúska flugfélagsins TANS, var á leið frá Líma, höfuðborg Perú, til borgarinnar Pucallpa í Amazon-frumskóginum. Hún lenti hins vegar í ofsaveðri í aðflugi að flugvellinum í Pucallpa. Því þurftu flugmenn vélarinnar að nauðlenda henni um 30 kílómetrum sunnan við borgina. Reynt var að draga úr skellinum með því að lenda í mýri en við lendinguna brotnaði vélin í tvennt og brak úr henni dreifðist um svæðið. Talið er að sviptivindur hafi komið á vélina í nauðlendingartilrauninni svo að hún skekktist með þessum afleiðingum. Sum fórnarlambanna áttu fótum sínum fjör að launa þegar þeir óðu mýrardrulluna áður en kviknaði í brakinu. Flestir þeirra sem létust voru Perúmenn en þar að auki létust bandarísk kona, kólumbísk kona og ítalskur karl. Ekki hefur enn tekist að bera kennsl á öll líkin og að minnsta kosti þriggja er enn saknað. Slæmar veðuraðstæður gerðu björgunarmönnum erfitt um vik og ekki var hægt að leita að fólki aðfaranótt miðvikudags vegna myrkurs og veðurofsa. Forstjóri flugfélagsins þvertekur fyrir að vélarbilun eða einhvers konar tæknilegur galli hafi valdið slysinu heldur hafi veðrinu verið einu um að kenna. Svörtu kassar vélarinnar fundust síðdegis í gær og er búist við að innihald þeirra geti varpað frekara ljósi á málið. Vél í eigu sama flugfélags fórst í janúar 2003 þegar hún rakst á fjall á svipuðum slóðum. Þá létust allir þeir 42 sem voru um borð. Þetta er fimmta þotuslysið í heiminum á innan við mánuði.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira