Mannréttindasamtök lítt hrifin 24. ágúst 2005 00:01
Útlendingar sem eru taldir ógna þjóðaröryggi Breta með því að hvetja til hryðjuverka, vegsama þau eða upphefja með einhverju móti geta nú átt von á því að verða sendir tafarlaust úr landi, samkvæmt nýjum reglum sem Charles Clarke, innanríkisráðherra Bretlands, birti í dag. Mannréttindasamtök eru ekki hrifin. Clarke sagði leikreglurnar í bresku þjóðfélagi einfaldlega hafa breyst eftir sprengjuárásirnar í Lundúnum 7. júlí þar sem 52 létu lífið. Hryðjuverkaógnina yrði að taka alvarlega og stjórnvöld yrðu að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að draga úr henni. Reglunum virðist einkum beint að íslömskum kennimönnum sem predika í moskum í Bretlandi, en allt það sem er birt opinberlega, hvort sem er á vefsíðum eða í dreifibréfum eða sagt í ræðum og predikunum, má nota gegn viðkomandi. Búinn verður til gagnagrunnur þar sem verður safnað upplýsingum um íslamska öfgamenn sem taldir eru tengjast hryðjuverkum á einhvern hátt eða eru grunaðir um að hafa hvatt til þeirra. Mannréttindasamtök eru ekki hrifin af nýju reglunum og óttast að þær leiði til þess að bresk yfirvöld sendi menn til landa þar sem pyntingar eru stundaðar. Þrátt fyrir að bresk stjórnvöld vinni nú að því að ná samkomulagi við arabaríki um að ekki verði farið illa með neinn sem vísað verður frá Bretlandi á þessum forsendum telja gagnrýnendur það lítils virði. Betra væri að rétta yfir viðkomandi heima í Bretlandi en hafa það á samviskunni að hafa ef til vill sent fólk beint inn í pyntingaklefa í heimalandinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira