Jarðarbúar níu milljarðar 2050 24. ágúst 2005 00:01
Indverjar verða orðnir fleiri en Kínverjar árið 2050, samkvæmt nýjustu skýrslu Mannfjölgunarráðs, sem hefur rannsakað mannfjölgun í 75 ár. Nær öll fjölgun jarðarbúa næstu áratugina verður í þróunarríkjunum, en spáð er að mannkynið verði orðið níu milljarðar eftir 45 ár. The Population Research Board eða Mannfjölgunarráð er óháð stofnun í Bandaríkjunum sem hefur rannsakað og spáð fyrir um mannfjölgun síðan árið 1930. Ráðið kynnti nýjustu skýrslu sína í Washington í gær. Þar segir að öruggt sé að jarðarbúum muni fjölga næstu áratugina, en nær öll sú fjölgun verði í þróunarríkjunum þar sem meðalfjöldi fæddra barna á konu í flestum vestrænum ríkjum er kominn niður fyrir tvö börn. Í þróunarríkjunum er meðaltalið enn þrjú til sjö börn. Kínverjar eru enn fjölmennasta þjóð heims með um 1,3 milljarða íbúa en Indverjar verða orðnir fleiri árið 2050, um 1,6 milljarðar. Stefna kínverskra stjórnvalda að hvetja hjón til að eignast ekki fleiri en eitt barn er farin að skila sér í hægari fólksfjölgun en að sama skapi bíður stjórnvalda það verkefni að halda uppi stórum kynslóðum af eldra fóki með færri hendur á vinnumarkaði. Í skýrslunni kemur einnig fram að meira en helmingur mannkyns lifir á innan við 130 krónum á dag og þriðjungur þeirra sem búa í dreifbýli hefur ekki aðgang að hreinu drykkjarvatni. Ungbarnadauði hefur minnkað á Vesturlöndum og í mörgum þróunarríkjum einnig en í Bandaríkjunum hefur hann aukist og er mun meiri en í Vestur-Evrópu. Því má bæta við að meðalfjöldi fæddra barna á kona á Íslandi er rétt innan við tvö börn, en það er þó næstmesti fjöldinn í Evrópu, einungis Tyrkir eignast fleiri börn.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira