Niðurstaða í Suður-Kóreu vonbrigði 21. júní 2005 00:01 "
Þessi niðurstaða er auðvitað vonbrigði. Við vorum að vonast til þess að niðurstaðan myndi miða eitthvað í áttina," sagði Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra eftir að ljóst var að tillaga Japana á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins um að hafnar yrðu hvalveiðar í atvinnuskyni, var felld. Hann sagði aðspurður engar hugmyndir um annað en að Íslendingar myndu sitja áfram í Alþjóðahvalveiðiráðinu. "Við getum ekki stundað hvalveiðar hvort sem er vísindaveiðar eða veiðar í atvinnuskyni nema að vera innan einhverrar stjórnunarstofnunar og Alþjóðahvalveiðiráðið er eina stjórnunarstofnunin sem býðst og því verður það svo," sagði Árni. Tillaga Japana um að hafnar yrðu hvalveiðar í atvinnuskyni var felld með meirihluta atkvæða á fundinum í Suður-Kóreu en til þess að heimilt yrði að hefja veiðar þurfti þrjá fjórðu hluta allra atkvæða fundarins. Stefán Ásmundsson, formaður íslensku sendinefndarinnar, sagði að niðurstaðan kæmi honum ekki á óvart en dagskrá fundarins væri ekki tæmd og því væru menn enn að ræða ýmis atriði sem meðal annars snerust um hvalveiðar í atvinnuskyni en auk þess hefði verið lagt hart að Japönum að hætti við áform sín um að tvöfalda kvóta veiddra hvala í vísindaskyni. "Viðræður eru enn í gangi og verið er að ræða ýmis mál en þetta er eins og við var að búast og við verðum enn að sætta okkur við að veiðar eru aðeins heimilaðar í vísindaskyni," segir Stefán. Engar hvalveiðar hafa verið stundaðar hér á landi í atvinnuskyni frá því árið 1986 en nú standa yfir veiðar í vísindaskyni. Frá því að mælingar hófust árið 1948 hafa verið veiddir hér á landi tæplega sautján þúsund hvalir en aðeins nokkur hundruð þeirra eru veiddir í vísindaskyni og til stendur að þeim veiðum verði hætt árið 2006.
Fréttir Innlent Mest lesið „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Erlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Fleiri fréttir Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Sjá meira