Íkveikja ekki útilokuð 4. september 2005 00:01
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins stóð heldur betur í ströngu aðfaranótt sunnudags þegar eldur kom upp í atvinnuhúsnæði á tveimur stöðum í borginni. Fyrri bruninn var í verslunni Melabúðinni og sá síðari í húsnæði við Fiskislóð. Allt tiltækt lið var sent á báða staði og gott betur þar sem aukalið var kallað út þegar ljóst var að allt stefndi í stærri bruna við Fiskislóð. Tilkynning um bruna í Melabúðinni barst þegar klukkan var farin að ganga þrjú. Reyndist þá vera eldur í pappakössum sem geymdir voru í steinsteyptri geymslu undir pappakassa sem snýr út að Hofsvallagötu. Logaði glatt í pappanum, en geymslan er með sérinngangi og vel einangruð. Verslunin sjálf slapp þó við skrekkinn því þótt einhver reykur kæmist þangað inn var hún laus við allt sót. Að sögn Friðriks Ármanns Guðmundssonar, verslunarstjóra Melabúðarinnar, urðu engar skemmdir á vörum og verslunin var opnuð á hádegi eins og venjan er á sunnudögum. "Þetta fór miklu betur en á horfðist. Við erum með mjög gott öryggiskerfi og góða nágranna sem ganga seint til náða um helgar, sem bjargaði því sem bjargað varð." Eldurinn í Melabúðinni var slökknaður um klukkan hálf fjögur og ekki nema þremur tímum síðar var tilkynnt um bruna við Fiskislóð. Þegar slökkviliðið kom á vettvang skíðlogaði í bíl sem var inni í húsinu og timburstæðum sem voru við hliðina á bílnum. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og slökkviliði á vakt tókst ásamt aukaliði að ráða niðurlögum hans á innan við klukkustund. Húsnæðið var allt að því tómt með hálfreistum veggjum og milliloftum svo fátt var þar inni sem gat brunnið. Því má segja að skemmdir vegna brunans hefðu hæglega getað orðið meiri. Lögreglan vildi sem minnst segja um upptök eldsvoðanna tveggja nema að ekkert væri búið að útiloka í þeim efnum. Þó má segja að harla ólíklegt sé að eldurinn í Melabúðinni hafi kviknað af sjálfu sér þar sem í geymslunni sem eldurinn kom upp í voru aðallega pappakassar og allar raflagnir vel einangraðar.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Innlent Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Innlent Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Innlent Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Innlent Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Innlent Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Lokatölur í Garðabæ: Sjálfstæðismenn bæta við sig fulltrúa Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Lokatölur í Eyjafjarðarsveit: F-listinn stækkar meirihlutann Lokatölur úr Hörgársveit: Gróska fékk flest atkvæði Samhenta sveitin með mikinn sigur í Hvalfjarðarsveit Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur þrátt fyrir missi Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Getur ekki lengur myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum Lokatölur í Mosfellsbæ: Meirihlutinn kolfallinn Raddir okkar allra unnu stórsigur Lokatölur úr Fjallabyggð: Meirihlutinn heldur velli Lokatölur á Akureyri: Sjálfstæðismenn rétt mörðu Bæjarlistann Lokatölur í Árborg: Sjálfstæðisflokkur hélt hreinum meirihluta Lokatölur í Borgarbyggð og Skorradalshreppi: Meirihlutinn fallinn Lokatölur í Múlaþingi: Meirihlutinn bætir við sig Lokatölur í Bláskógabyggð: Það sama upp úr kössunum og síðast Ingibjörg Þóranna hlaut flest atkvæði í Dalabyggð Einar vill Viðreisn frekar en Miðflokkinn Sjá meira