Koma jólabjórsins er karnival Dana 28. nóvember 2005 17:30 Jón Kalman Stefánsson rithöfundur
Nú er tími jólabjórsins upprunninn og íslenskir sem erlendir bjórframleiðendur að stilla fram jólaöli ársins. Í Danmörku er rótgróin hefð fyrir jólabjór og mikið um dýrðir honum tengt. Rithöfundurinn Jón Kalman Stefánsson bjó þrjú ár í Danaveldi og kynntist þeirri stemningu vel. "Þá kynntist ég þessari hátíð sem Danir kunna að búa til í kringum jólabjórinn. Maður fór út í búð snemma morguns og þá var búið að koma upp borði og hella jólabjór til hálfs í glösin. Síðan fóru Danir að slæðast kátir inn í búðina til að smjatta á bjórnum og velta fyrir sér hvort hann væri betri í ár en árið áður og rifja upp minningar frá því í fyrra. Þessi stemning hreif mig mjög og ég sá strax að þetta snerist um eitthvað allt annað og meira en það eitt að drekka bjór," segir Jón Kalman, sem nú teflir fram skáldsögunni Sumarljós, og svo kemur nóttin. "Fyrir Dani eru allir dagar eins þegar kemur að bjór og því er þessi hátíð ekki endilega stíluð inn á helgi. Þetta var kannski á miðvikudagsmorgni og ekki verið að hella í neinar fingurbjargir heldur stór glös. Þótt Danir fyndu ekki á sér ranglaði Íslendingurinn út eftir smakkið og keypti náttúrlega helmingi meira en annars í búðinni," segir Jón Kalman hlæjandi, en af dönskum jólabjór hefur hann mest dálæti á Tuborg. "Stemmingin nær hámarki þegar grænt ljós er sett á dreifingu jólabjórsins og tankbílar keyra frá verksmiðjunum til að dreifa húfum, merkjum og öðrum varningi tengdum bjórnum meðal fólksins. Þessu fylgir heilmikil tilhlökkun hjá Dönum, þetta er þeirra karnival og margir sem vakna sérstaklega til að fá sér bjór," segir Jón Kalman sem sjálfur sér til þess að eiga smávegis af dönskum og líka íslenskum jólabjór til samanburðar á aðventunni. "Íslenski jólabjórinn er fyrirtak en hefur ekki hitt mig í hjartastað eins og sá danski, sem ég er nú tilfinningalega bundinn, eða öllu heldur stemningunni í kringum hann. Danir eru sérfræðingar í að búa til hátíð í kringum það sem þeir framleiða og gera að miklu meira en öli eða varningi."
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira