Kertaljós tendruð á Lækjartorgi 7. júlí 2005 00:01
Kertaljós voru tendruð á mótmælafundi Amnesty International við Lækjartorg klukkan fimm. Opinberar stofnanir flögguðu í hálfa stöng og íslenskir þjóðarleiðtogar sendu Bretum samúðarkveðjur í kjölfar atburðanna í dag. Fyrirbænastund verður í Dómkirkjunni í Reykjavík klukkan átta í kvöld. Íslandsdeild Amnesty International boðaði til mótmælafundar á Lækjartorgi í dag til að sýna samstöðu með fórnarlömbum árásanna í Lundúnum og standa vörð um mannréttindi. Samtökin fordæma sprengjuárásirnar, segja árásir á almenna borgara aldrei réttlætanlegar og að þeir sem beri ábyrgð á árásunum verði að svara til saka í réttarhöldum. Flaggað var í hálfa stöng við opinberar stofnanir, þar á meðal við utanríkisráðuneytið, Stjórnarráðið og Seðlabankann. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi Elísabetu Bretadrottningu og Tony Blair samúðarkveðjur í dag eins og fjöldi annarra þjóðarleiðtoga víða um heim. Þá sendi Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, Blair samúðarskeyti vegna hryðjuverkanna. Forseti Alþingis, Halldór Blöndal, sendi að auki samúðarkveðjur fyrir hönd Alþingis til Michaels Martins, forseta neðri deildar breska þingsins, og sagði hann Íslendinga hugsa hlýtt til bresku þjóðarinnar á þessum erfiðu tímum. Íslenska þjóðkirkjan hefur vottað sendiráði Bretlands á Íslandi samúð sína og var þeim tilmælum beint til presta að þeir myndu opna kirkjur sínar klukkan sex í kvöld til að taka á móti fólki og leiða það í fyrirbæn fyrir fórnarlömbum árásanna. Fyrirbænastund vegna atburðanna verður í Dómkirkjunni í Reykjavík klukkan átta í kvöld.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira