Skoða einn af hverjum hundrað gámum 23. nóvember 2005 04:00 Innflutningshöfnin í Sundahöfn. Tollgæslan getur aðeins rannsakað um eitt prósent þeirra 200 þúsund gáma sem hingað berast á ári hverju.Fréttablaðið/Hari "
Að mínu viti hefur verið illa að þessum málum staðið hingað til og ég tel orðið nauðsynlegt að kaupa slíkt tæki sem allra fyrst," segir Guðmundur Hallvarðsson alþingismaður. Hann hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi hvort til standi að kaupa gegnumlýsingartæki fyrir gáma fyrir tollgæsluna í því skyni að hefta innflutning á fíkniefnum. Um er að ræða skanna sem getur tekið heilu gámana í gegn á nokkrum mínútum en einu slíku tæki tollgæslunnar í dag eru svo lítil að þau ráða ekki við að gegnumlýsa eitt vörubretti. Mikill tími fer í að opna gáma og taka úr þeim vörur sem nauðsynlegt er að handlanga í gegn og segir Guðmundur að aðeins eitt prósent þeirra tvö hundruð þúsund gáma sem hingað koma séu skoðaðir sökum þessa. "Ég hef fyrst og fremst áhyggjur af fíkniefnum í þessu sambandi. Meðan ekki er hægt að leita betur, hraðar og markvissara en gert er í dag erum við að bjóða hættunni heim." Sigurður Skúli Bergsson, forstöðumaður tollgæslusviðs tollgæslunnar, segir vissulega þörf fyrir slík tæki við helstu gámaflutningahafnir. "Með þeim tækjum sem við höfum getum við aðeins gegnumlýst stöku kassa og vissulega setur það okkur ákveðnar skorður." Aðspurður um hvort eitthvað af þeim fíkniefnum sem tollgæslan lagði hald á við leit á síðasta ári hafi fundist með hjálp þeirra gegnumlýsingartækja sem þeir hafa yfir á að ráða sagði hann svo ekki vera. "Þetta eru fyrst og fremst hjálpartæki og leiki grunur á einhverju óeðlilegu þá er viðkomandi vöru rennt í gegn." Guðmundur Hallvarðsson segist vita til þess að verið sé að skoða kaup á slíku tæki hjá fjármálaráðuneytinu en hvert slíkt tæki kostar um 80 milljónir króna. "Allar nágrannaþjóðir okkar eiga slík tæki enda nauðsynlegt að tollaeftirlit sé virkt og það er að mínu viti ekki hér á landi. Það segir sig sjálft að verðmæti stórra fíkniefnasendinga er það mikið að slíkur búnaður yrði fljótt búinn að borga sig ef slíkt næðist."
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Fleiri fréttir Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Sjá meira