Skipan dómsmálaráðherra er ógild 23. nóvember 2005 05:00 Gestur Jónsson og aðrir verjendur í Baugsmálinu. Gestur telur bagalegt fyrir framhald málsins að fá ekki úrskurð um hæfi dómsmálaráðherra.
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gær að Sigurður Tómas Magnússon, sérstakur saksóknari í Baugsmálinu, væri ekki bær til þess að fara með ákæruvald í þeim hluta málsins sem ekki var vísað frá dómi í Hæstarétti. Dómendur líta svo á að Bogi Nilsson ríkissaksóknari hafi aldrei sagt sig formlega frá þeim átta ákæruliðum Baugsmálsins sem enn eru til meðferðar í dómskerfinu, heldur aðeins tekið að sér athugun á þeim 32 ákæruliðum sem vísað var frá dómi. Bogi Nilsson og Björn Bjarnason dómsmálaráðherra tjá sig ekki um málið og segja báðir að það sé enn í höndum Sigurðar. "Ég hef þrjá sólarhringa til þess að ákveða hvort þetta verður kært til Hæstaréttar," segir Sigurður T. Magnússon en hann gerir ráð fyrir að ákvörðun sín liggi fyrir á fimmtudag. "Dómararnir segja að sú ákvörðun dómsmálaráðherra að skipa Sigurð Tómas Magnússon sérstakan saksóknara í öllum fjörutíu liðunum sé einfaldlega umfram það sem að dómsmálaráðherra hafði heimild til," sagði Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eftir að úrskurðurinn var birtur. Í úrskurðinum segir að mikilsvert sé að enginn vafi leiki á því hver fari með ákæruvald í hverju máli og heimild ákæranda til þess að fara með það vald verði því að vera skýr og ótvíræð. Þá segir að dómsmálaráðherra sé óheimilt að taka einstakt mál undan forræði ríkissaksóknara og setja yfir það sérstakan ríkissaksóknara nema hinn reglulegi ríkissaksóknari hafi áður vikið sæti. "...Verður að telja að ekki hafi verið heimilt að fela hinum sérstaka saksóknara að fara með þennan málshluta og sú stjórnarathöfn hafi jafnframt verið ógild að þessu leyti." Gestur Jónsson telur miður að ekki hafi fengist niðurstaða um hæfi Björns Bjarnasonar, en ekki reyndi á það úr því úrskurðað var að Sigurður væri ekki bær til að fara með ákæruliðina átta. "Það er mikilvægt að dæmt verði um hæfi dómsmálaráðherra því upp geta komið annmarkar á síðari stigum sem eyðilagt geta málsmeðferðina frá upphafi."
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Innlent Fleiri fréttir Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Sjá meira