Sýndu fjölmiðlum þorp í N-Kóreu 25. ágúst 2005 00:01
Norðurkóresk yfirvöld hafa hleypt fréttamönnum inn í þorp sem svo gott sem eyðilagðist í mikilli sprengingu í vor. 161 fórst og 8.000 heimili eyðilögust. Ryongchon er nítján kílómetra fyrir sunnan landamærin við Kína. 22. apríl í fyrra fór lest með leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong Il, innanborðs í gegnum lestarstöðina í þorpinu og skömmu síðar varð gríðarleg sprenging á lestarstöðinni. Þorpið þurrkaðist því sem næst út, svo öflug var hún. Vegna nálægðar við landamærin spurðist harmleikurinn fljótlega út og aldrei þessu vant ákváðu norðurkóresk stjórnvöld að þiggja alþjóðlega aðstoð við uppbyggingu. Nýr skóli hefur verið tekinn í notkun og verið er að ljúka við byggingu sjúkrahúss. Námsefnið er þó alltaf það sama - takmarkalaus dýrkun á Kim Jong Il. Peak Myong Hui, nemandi í Ryongchong-skóla, segir að þegar sprengingin hafi orðið hafi hún séð kennara sinn vaða inn í eldinn til að bjarga myndum af Kim Jong Il. Þá hafi hún einnig séð börn leita grátandi að foreldrum sínum. Þrátt fyrir að norður-kóresk stjórnvöld hafi þegið aðstoð að þessu sinni bendir ekkert til þess að almenn stefnubreyting hafi orðið. Alþjóðastofnanir hafa því litla möguleika á að koma almennum borgurum til aðstoðar, en hungursneyð og fátækt er gríðarleg í landinu. Þær stukku því á þetta tækifæri og Suður-Kórea ein gaf jafnvirði 1300 milljóna króna til uppbyggingarinnar í Ryongchon. Leikmenn gæta sín þó á því að þakka réttum aðila fyrir hjálpina. Kim Yong Choi, varaformaður endurbyggingarnefndar í Ryongchon, segir að undir hlýlegri forsjá Kimgs Jongs Ils hafi verið lokið við að endurbyggja 80 prósent af Ryongchon. Enn eigi þó eftir að ljúka við menningarhöllina, héraðssjúkrahúsið og að leggja slitlag á vegi. Stefnt sé að því að ljúka þessu öllu fyrir 10. október.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira