Flóðin eru heldur í rénun 25. ágúst 2005 00:01
Flóðin í Mið-Evrópu sem hafa dregið í það minnsta 42 manns til dauða eru heldur í rénun. Í Bern, höfðuborg Sviss, þurfti aftur á móti að rýma fjölda húsa þegar áin Aare flæddi yfir bakka sína. Mikið lægðakerfi hefur gengið yfir miðja Evrópu síðustu daga og hefur úrkoma verið með allra mesta móti. Ár hafa flætt yfir bakka sína og flóðgarðar brostið með tilheyrandi eignatjóni. Í gær fór hins vegar að draga úr úrkomunni og um leið tók vatnið víða að sjatna. Rennslið í Dóná náði hins vegar ekki hámarki fyrr en í gærkvöldi. Verst hefur ástandið verið í austanverðri álfunni, í Rúmeníu týndu 31 lífi þegar flóð kaffærðu 1.400 hús um mitt landið. Þar er þriggja ennþá saknað, þeirra á meðal er fjögurra ára gömul stúlka. Ellefu manns eru látnir eða er saknað í Þýskalandi, Austurríki og Sviss og mikið tjón hefur orðið á mannvirkjum og ökrum í Búlgaríu, Slóveníu og Moldóvu. Í Alpahéruðunum rofnuðu allar samgöngur við fjölda þorpa eftir að vatnselgurinn reif vegi í sundur. Varð að flytja vistir á vettvang með þyrlum. Í Sviss hefur ástandið verið með versta móti. Gamli bærinn í Luzern er nánast á kafi og rýma varð fjölda húsa í höfuðborginni Bern þegar áin Aare tók að flæða yfir bakka sína. Þyrlur hífðu fólk á brott sem hafði leitað skjóls undan flóðinu á þaki húsa sinna. Talið er að tólf manns séu fastir inni í húsunum og sögðu stjórnvöld að staðan væri viðkvæm í gær. Grétar Rafn Steinsson, knattspyrnumaður með Young Boys, býr í Bern. "Engin röskun er á högum okkar sem búum ofar í borginni . Allt er hins vegar á floti hjá þeim sem búa við árbakkann, þar sér maður hústoppana rétt standa upp úr." Grétar segir samgöngur ganga greiðlega á milli bæjarhluta en viðurkennir að ástandið sé víða slæmt. "Sumir staðir eru algerlega á kafi undir vatni. Í bænum hér við hliðina er heimavöllur liðsins Thun og hann er núna þrjá metra undir vatni. Liðið var að komast í Meistaradeildina í vikunni en þeir munu ekki spila á vellinum sínum á næstunni."
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira