Vodafone live 26. nóvember 2005 14:22
Og Vodafone hefur tekið í notkun nýja virðisaukandi þjónustu sem nefnist Vodafone live! Um er að ræða efnisveitu sem tryggir viðskiptavinum Og Vodafone nýjan afþreyingarheim í GSM símann. Hún gerir notendum mögulegt að að spila hágæða tölvuleiki, sækja fréttir og upplýsingar, ná í skjámyndir og tónlist eða eiga samskipti við aðra Vodafone live! notendur. Vodafone live! er afurð Vodafone Group Plc sem er stærsta farsímafyrirtæki heims. Þjónustunni var hleypt af stokkunum í átta löndum í lok árs 2002 og hefur orðið samnefnari fyrir afþreyingu og upplýsingar fyrir farsíma, hvort sem um er að ræða Myndskilaboð, WAP síður, javaleiki eða hringitóna. Og Vodafone hefur aðlagað þjónustuna að íslenskum aðstæðum sem gerir viðskiptavinum mögulegt að upplifa spennandi og áður óþekkta afþreyingarmöguleika í farsíma. Vodafone live! er í boði fyrir viðskiptavini Og Vodafone. Þeir þurfa Vodafone live! símtæki til þess að nota þjónustuna sem eru nú þegar komin í verslanir. Ekki greitt fyrir GPRS notkun innanlands Vodafone live! virkar alls staðar þar sem GPRS samband er fyrir hendi. Hins vegar er ekki greitt sérstaklega fyrir GPRS notkun. Notendur geta því sótt fjölbreytt efni með einföldum hætti hvar og hvenær sem er. Þeir vita ætíð hvað þeir borga fyrir hverja þjónustu og geta skoðað yfirlit yfir það sem þeir hafa keypt á liðnum mánuðum. Vodafone live! virkar fyrir Og Vodafone Frelsi. Þá er hægt að nota Vodafone live! í útlöndum en þá greiðir notandi bæði fyrir GPRS og gagnamagn.Margvíslegir möguleikar með Vodafone live! Fjölbreytt úrval hágæða tölvuleikja frá helstu leikjaframleiðendum heims Þúsundir íslenskra og erlendra rauntóna (MP3) Fréttir, veður og upplýsingar frá NFS og Fréttablaðinu Íþróttafréttir frá NFS og Fréttablaðinu Íþróttaúrslit og staðan í deildum víðs vegar um heim Viðskiptafréttir frá Markaðnum og upplýsingar frá ICEX Veggfóður og hreyfimyndir úr heimi tónlistar, kvikmynda, íþrótta og sjónvarps Myndskeið með mörkum úr ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu Spjall, einkamál og HópSMS Bloggsíður Lottó og getraunir (1X2 og Lengjan) Öflug leitarvél Uppfletting í símaskrá (118) Sjónvarpsdagskrá Kvikmyndir í kvikmyndahúsum og á myndbandaleigum Stjörnuspá og stjörnuspeki Færð á vegum, upplýsingar um brottför og komutíma flugvéla og áætlun strætisvagna Hvað er á döfinni í tónlistar- og skemmtanalífi landsins Upplýsingar um veitingastaði Smáauglýsingar: Bílar, húsnæði, atvinna og fleira Idol stjörnuleit Uppskriftir Loftmyndir frá Íslandi Vodafone live! er heimur sem tekur sífelldum breytingum og kemur notendum ávallt á óvart. Vodafone live! GSM símar Vodafone live! er aðgengilegt með Vodafone live! símtækjum og því virkar þjónustan ekki í hvaða GSM síma sem er. Og Vodafone býður Vodafone live! GSM síma frá Nokia, Samsung og Motorola í upphafi. Gert er ráð fyrir að Vodafone live! verði í boði frá fleiri framleiðendum áður en langt um líður. Þjónustan er uppsett í öllum Vodafone live! símtækjum. Þess vegna þurfa notendur einungis að smella á einn hnapp á símtækinu til þess að sækja sér það efni sem þeir kjósa hverju sinni. Notendur geta skoðað allt efni sem er í boði áður en þeir ákveða að fara lengra og kaupa tiltekna þjónustu, hvort sem það eru leikir, hringitónar eða veggfóður. Jafnframt fá þeir að vita hvað einstök þjónusta kostar áður en kaupin eiga sér stað. Ný upplifun í tölvuleikjum Með Vodafone live! geta viðskiptavinir Og Vodafone fengið heitustu leikina sem fáanlegir eru fyrir farsíma. Þeir geta jafnframt fengið klassíska leiki sem nú ganga í endurnýjun lífdaga í GSM símum. Með Vodafone live! getur viðskiptavinur séð hvaða leikir eru fáanlegir fyrir símann sinn, séð skjámyndir af þeim og lesið lýsingu á íslensku. Notandi getur sótt sér þrautir, íþróttaleiki, skotleiki, kappakstursleiki og fjölda annarra skemmtilegra tegunda af leikjum. Hann getur prófað að fara í japanska glímu við fíl, sett sig í spor Tiger Woods, spilað PAC MAN eða glímt við harðsvíraða glæpamenn. Hann er aðeins nokkrar sekúndur að sækja sér leik með Vodafone live! - en skemmtunin getur varað eins lengi og hann kýs.
Menning Mest lesið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Einar og Milla eiga von á dreng Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira