Kom ríðandi á ljósmyndasýningu 24. júní 2005 00:01
Andlit norðursins með augum Ragnars Axelssonar ljósmyndara er sýning þessa árs á Austurvelli. Ragnar hefur tengst mörgum myndefnanna vinaböndum, þar á meðal Kristni fjallkóngi frá Skarði sem kom ásamt dóttur sinni Rakel ríðandi á opnun sýningarinnar í dag. Gestir og gangandi fá tækifæri til að njóta mynda Ragnars Axelssonar eða Raxa eins og flestir þekkja hann fram að hausti. Þetta eru sextíu myndir, frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Ragnar er löngu þekktur fyrir sérstaka hæfileika sína sem erfitt er að lýsa í orðum en óhætt er að segja að hann nær að fanga dramatísk augnablik hversdagsins og láta áhorfandann um leið finna fyrir mikilli nálægð við myndefnið. Myndefni eins og Kristinn Guðnason fjallkóng frá Skarði sem sést á einni myndinni bjarga kind úr vandræðum í Eystri Rangá. Kristinn segist stoltur af myndinni, hún sé falleg og sérstök. Ragnar Axelsson segir flesta sem hann hefur tekið myndir af orðið góða vini hans en suma hitti hann ekki aftur. Hann reyni þó að fylgjast með hvað sé að gerast í þeirra lífi. Kristinn fjallkóngur sem ekkert breytist kom ríðandi til byggða á hestinum Gyrði en Eldur, sem hann var á þegar myndin góða var tekin, er fallinn. Kristinn segir íslenska hestinn magnaða skepnu og útlendingar furði sig oft á fjölbreyttu hlutverki hans. Menn sjái sömu hestana í keppni á Landsmótum og svo aftur við smölun í afréttum. Aðspurður hvort það sé ekki eins og Íslendingar allir, sem þurfi að ganga í öll verk, segir Kristinn að kannski hafi Íslendingar mótast eftir hestinum. Maður og hestur er einmitt næsta verkefni Raxa en að þessu sinni ætlar hann að mynda ferðalag þeirra um landið úr lofti og að sjálfssögðu allt í svart hvítu. Hann segir að sér finnist svarthvítar myndir miklu flottari. Það séu margir sem taki miklu betri myndir í lit en hann þannig að hann geri eins vel og hann geti í svarthvítu.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira