Farsímahringingar til vandræða 7. október 2005 00:01
Farsímahringingar heyrast gjarnan á óheppilegum tímum eins og í jarðarförum og beinum útsendingum. Tónlistarmenn verða líka oft fyrir truflun þeirra eins og stórsöngkonan Kiri Te Kanawa fékk að reyna í vikunni. Eyþór Gunnarsson tónlistarmaður hefur tekið upp á því að spila kunnuglega farsímahringingu í upphafi athafna eða tónleika ef aðstæður eru þannig að tónlistin sem verið er að flytja sé viðkvæm og þörf sé á þögn. Þetta virðist virka mjög vel og þeir sem séu með farsíma kanni hvort ekki sé slökkt á honum. Aðspurður hvort það sé truflandi ef farsími byrji að hringja í miðju verki segir Eyþór að það geti verið svo en ef tónlistin sé nógu hávær til að yfirgnæfa það skipti það engu máli. Ef tónlistin sé lágvær og krefjist mikillar einbeitingar geti hringing sett flytjanda út af laginu. Síminn hringdi tvisvar á tónleikum Kiri Te Kanawa á miðvikudaginn og þurfti hún að biðja í bæði skiptin um að slökkt yrði á símanum. Þetta er langt frá því að vera einsdæmi en síminn hefur svo fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar viti til hringt hjá saksóknara í dómsuppkvaðningu og hjá presti í miðri guðsþjónustu. Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór þekkir til truflana símhringinga á verstu stundum og segir hann síma hringja í um þriðju hverri jarðaför sem hann syngur við. Hann segir Íslendinga oft gleyma að slökkva á símunum. Þetta hafi komið fyrir ýmsa en hann hafi sjálfur verið það heppin að athöfnin hafi rétt verið að byrja þannig að hann hafi rétt sloppið. Hann hafi því yfirleitt slökkt á símanum sínum.
Mest lesið Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“ Lífið „Algjörlega út úr kortinu fyrir íslenskan listamann“ Tónlist Birti bónorðið í Bændablaðinu Lífið Guðlaugur Þór í klandri með klukkuna Lífið Áslaug Arna situr tíma hjá Hillary Clinton Lífið Óttar selur glæsiíbúð í Garðabæ Lífið Tugmilljóna trúlofunarhringur ofurfyrirsætu vekur athygli Lífið Uppfyllti loksins loforð um ísbjörn í Reykjavík Lífið Geislandi Vigdís og gat á skónum sem mátti ekki sjást Menning Uppselt á tónleika Laufeyjar og aukatónleikum bætt við Tónlist Fleiri fréttir Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“ Óttar selur glæsiíbúð í Garðabæ Guðlaugur Þór í klandri með klukkuna Brynja og Lil Curly ástfangin í draumkenndu fríi Ragnhildur Steinunn snýr aftur á hvíta tjaldið Birti bónorðið í Bændablaðinu Svona verður Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu Tugmilljóna trúlofunarhringur ofurfyrirsætu vekur athygli Uppfyllti loksins loforð um ísbjörn í Reykjavík Áslaug Arna situr tíma hjá Hillary Clinton „Eiginlega vandræðalega mikil áhrif“ Er í lagi að fróa sér yfir nektarmyndum af fyrrverandi? „Pabbi minn gaf okkur saman“ Litrík og ljúffeng búddaskál Unnsteinn Manuel og Ágústa selja hvíta miðbæjarperlu Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Umdeild mormónadrottning nýja piparjónkan Leifur Andri og Hugrún selja íbúðina í Garðabæ Á leið á heimsmeistaramót í drifti: „Íslendingarnir eru til, við getum þetta líka“ Endurheimti lífsgleðina við gerð ostabakkanna Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Afar ólíklegt að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael með Sunneva syrgir Bellu: „Ég mun alltaf sakna þín“ „Pabbi Rúríks“ lét sig ekki vanta Alveg sama þótt hann tapi mörgum milljónum „Þetta situr enn þá í mér í dag“ Jóhann Berg og Hólmfríður selja glæsihöllina á Arnarnesi Dóttir Arons Kristins og Láru komin með nafn Segist ekki dauður heldur „sprelllifandi“ Sonur Hersis og Rósu kominn með nafn Sjá meira