Innlent

Vatnsendaskóli tekinn í notkun

Vatnsendaskóli í Kópavogi var formlega tekinn í notkun í dag. Skólastarf er þó þegar hafið og stunda 120 nemendur nám við skólann í fimm bekkjardeildum en búist er við að nemendafjöldi tvöfaldist á næsta skólaári þegar næsta áfanga í byggingu skólans er lokið. Sérstök áhersla verður lögð á raungreinanám, einkum náttúrufræði, í starfi nýja skólans. Sérstakt tillit var tekið til þess við hönnun skólans og umhverfi skólans við Elliðavatn talið sérstaklega vel til þess fallið að styðja við þessar áherslur.Skólastjóri Vatnsendaskóla er Guðrún Soffía Jónasdóttir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×