70 prósent telja Ingibjörgu hæfari 9. febrúar 2005 00:01
Sjötíu prósent samfylkingarfólks telja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur hæfari en Össur Skarphéðinsson, til að gegna formennsku í Samfylkingunni. Sextíu prósent sjálfstæðismanna telja Össur hins vegar hæfari til starfans. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem Gallup gerði fyrir Mannlíf í janúar og birtist í nýjasta tölublaði þess. Þátttakendur í könnuninni voru rúmlega 800, en alls voru 1288 manns beðnir um að taka þátt. Spurt var: Hvort telur þú að Ingibjörg Sólrúnu Gísladóttir eða Össur skarphéðinsson sé hæfari til að gegna formennsku í Samfylkingunni? 65 prósent þeirra sem gáfu upp afstöðu sína sögðust telja Ingibjörgu hæfari til að gegna formannsembættinu en 35 prósent töldu Össur hæfari. Þegar afstaða þeirra sem kjósa Samfylkinguna er skoðuð kemur í ljós að heil 70 prósent telja Ingibjörgu hæfari. Átján prósent þeirra telja Össur hæfari og tólf prósent segjast hlutlaus. Sé aðeins litið til samfylkingarfólks sem gerir upp á milli formannsframbjóðendanna eykst hlutfall þeirra sem velja Ingibjörgu upp í 80 prósent. Athygli vekur hins vegar að á meðal kjósenda Sjálfstæðisflokksins telja sex af hverjum tíu Össur hæfari en Ingibjörgu Sólrúnu til að leiða Samfylkinguna og 53 prósent Framsóknarmanna eru einnig á þeirri skoðun. Þrír fjórðu hlutar kjósenda Vinstri - grænna telja Ingibjörgu hins vegar hæfari en Össur. Afgerandi meirihluti kvenna telur Ingibjörgu hæfari, eða um 72 prósent. Munurinn er nokkuð minni meðal karla sem svöruðu könnuninni. Þeirra á meðal telja tæplega sex af hverjum tíu að Ingibjörg sé hæfari en rúmlega 40 prósent karlmanna hallast frekar að Össuri.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Sjá meira