Innlent

Kemur af fjöllum

Oddur Friðriksson er yfirtrúnaðarmaður verkalýðsfélaganna á Kárahnjúkum og ber þann stóra titil með sóma. Maðurinn ber það með sér að vera fastur fyrir og fylginn sér; þreklega vaxinn og snöfurmannlegur í framkomu. Hann er ljós yfirlitum og útitekinn, enda kemur maðurinn af fjöllum.

Við hittumst yfir snarpheitu kaffi úr fanti á Kaffivagninum við Grandagarð, hvar annars staðar. Þar iðar allt af lífi og mikið skvaldrað og hlegið; staðurinn þéttsetinn karlmönnum svo til eingöngu; konurnar eru innan við afgreiðsluborðið og skenkja kaffi og meðlæti. Þannig er nú það á þessum bænum.

Áratugir á fjöllumÚt um stóra gluggana blasir hin gamla lífæð borgarinnar, höfnin, við og trillurnar liggja letilega við kæjann og láta mjúka ölduna vagga sér blítt og létt. Handtak Odds er hins vegar þétt og eilítið hrjúft enda hendur hans hertar í margs konar átökum við erfiðisverk og óblíða veðráttu á fjöllum um áratuga skeið. Svipmótið er hvasst en maðurinn þó fjarri því að vera hvass á manninn; þvert á móti, honum liggur lágt rómur. Kárahnjúkar öðruvísiKárahnjúkar eru sem sagt ekki fyrsti vinnustaður Odds á fjöllum. "Nei, ég vann bæði við Sultar­tangavirkjun og Vatnsfellsvirkjun á sínum tíma," segir hann og kveikir sér í sígarettu. Það er reyndar mikið reykt á Kaffivagninum og maður spyr sig ósjálfrátt hvað verði um stað sem þennan þegar og ef reykingabann á veitingastöðum verður samþykkt á Alþingi. Oddur segir mikinn mun á Kárahnjúkum og hinum virkjunarstöðunum. "Þar vorum við að dúlla þetta tíu til fimmtán kallar við að koma upp aðstöðu til að byrja með en þegar ég kom upp að Kárahnjúkum voru þar kannski hundrað manns. Og svo fyllist allt bókstaflega á hálfum mánuði," rifjar hann upp og hristir höfuðið með bros á vör. Villta vestrið í fyrstuÞá var lítið sem ekkert tilbúið á staðnum, ekkert mötuneyti svo dæmi sé tekið. "Manni var eiginlega hent út í djúpu laugina," segir Oddur og hlær stuttlega. "En þetta hefur mikið breyst síðan þá," bætir hann við hugsi. "Maður átti til dæmis ekki einn einasta frídag að heitið gæti fyrsta eina og hálfa árið. Þetta var eins og villta vestrið þarna til að byrja með." Hann brosir að minningunni um leið og hann drepur í sígarettunni. Það sem kom honum eiginlega mest á óvart og gerir enn er að þrátt fyrir allan þennan gríðarlega mannfjölda sem þarna er samankominn frá öllum heimshornum, hafa engin alvarleg vandamál komið upp í samskiptum manna í milli. "Ég er eiginlega mest hissa á því," segir Oddur einlæglega, "en þarna hafa ekki komið upp nein vandamál vegna þjóðernis eða trúarbragða, kannski einhver smá átök manna milli eins og gengur og gerist en ekki vegna þjóðernis eða trúar." Svona gerið þið ekkiVið fáum okkur meira kaffi og Oddur horfir annars hugar út um gluggann á sjó og báta; landslag sem hann hefur ekki fyrir augunum langtímum saman. Hann rifjar upp átökin við Im­pregilo í upphafi vegna ófullnægjandi samninga og annars og nefnir að um skeið var ástandið þannig að hann mátti varla tala við einstaka starfsmann að morgni án þess að búið væri að reka viðkomandi að kvöldi og senda úr landi. "Svo kom félagsmálaráðherra í heimsókn til okkar," segir hann og glottir út í annað, "og rétt á meðan hann staldraði við hjá mér er hringt frá Impregilo og mér sagt að það eigi að senda einhverja menn heim. Ég rétti bara ráðherranum tólið og hann sagði: "Svona gerið þið ekki meðan ég er hérna."" Eftir þetta fóru Impregilo-menn hægar í sakirnar að sögn Odds. "Kannski óttuðust þeir að ég myndi hringja beint í ráðherrann," segir hann og hlær góðlátlega. Fótbrot lítið málOddur segist hafa öðlast nokkuð góða innsýn í mismunandi þjóðarkarakter á dvölinni á Kárahnjúkum. Nefnir Kínverjana sem dæmi um duglegt og agað fólk. "Þeir eru alltaf brosandi, sama hvernig viðrar, eru einstaklega harðir af sér og þú ferð ekki með þá upp á spítala nema stórslasaða. Þeir verða varla veikir hvað þá meira," segir hann með aðdáun í röddinni. "Þeir vilja ekki missa vinnuna hvað sem það kostar, brotni þeir á fæti er það minniháttar mál," bætir hann við og spennir greipar um kaffifantinn. Fjallaáráttan í blóðinuHann segir reynsluna segja sér að langdvalir á fjöllum eru ekki fyrir hvern sem er. Slíkt henti ákveðnum manngerðum betur en öðrum og hann sé sjálfur tvímælalaust í þeim hópi sem þolir þetta vel. "Mér líður hvergi betur en uppi á fjöllum," segir hann hlýlega. "Ætli ég sé ekki best geymdur þar," bætir hann við glottuleitur og útskýrir það ekki frekar. Honum finnst ágætt að koma í bæinn helgi og helgi en svo leitar hugurinn aftur til fjalla. "Ég er alinn upp á fjöllum, þannig að þetta er í blóðinu," útskýrir hann. Gaman að skoða í KringlunniMeð því á hann við að faðir hans var leiðsögumaður ferðamanna á árum áður og Oddur fór ófáar fjallaferðirnar með honum auk þess sem móðir hans var lengi skálavörður í Kerlingarfjöllum og þar dvaldi hann langdvölum. "Þaðan kemur þetta," segir Oddur íhugull á svip og nefnir sem dæmi um óbyggðafíknina, að hann fari iðulega í ferðir með Útivist þá sjaldan sem hann á frí og hafi aukinheldur tekið að sér skálavörslu í Þórsmörk í fríum. "Mér finnst þó gaman að koma í bæinn af og til og ég er einn af þeim sem finnst gaman að fara í Kringluna, bara til að skoða. Konan mín þolir það hins vegar ekki, finnst þetta bara hávaði og læti," segir hann hlæjandi. Fullkomið umhverfiÞegar hann er beðinn um að útskýra hvað það sé sem geri fjallalífið svona heillandi nefnir hann kyrrðina og fegurðina. "Þegar þú vaknar upp á fjöllum er allt umhverfið nánast fullkomið, ekkert áreiti. Til dæmis að vakna við Kárahnjúka og horfa á Snæfell í morgunroðanum, það er eins fullkomið og það getur verið," segir hann með væntumþykju í rómnum. Framtíðin kemurVerklok við Kárahnjúka eru áætluð í árslok 2007 en Oddur er ekkert farinn að hugsa til þess hvað þá tekur við. "Nei, nei og það er bara allt í lagi, það hlýtur eitthvað annað að taka við," segir hann með stóískri ró þess sem ekki gerir sér rellu út af smámunum einsog framtíðinni. Hún kemur bara.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×