Heimabankaþjófur játar milljónastuld 13. desember 2005 07:00 Greiðlega gekk hjá lögreglu að leysa fjögur þjófnaðarmál sem komu upp þegar maður stal ríflega tveimur milljónum úr heimabönkum.
Tuttugu og fimm ára karlmaður hefur játað að hafa stolið úr heimabönkum einstaklinga ríflega tveimur milljónum króna. Hann hefur einnig játað að hafa tekið fjárhæðirnar út og ráðstafað þeim. Hann var leystur úr gæsluvarðhaldi á föstudag. Maðurinn var handtekinn á mánudagskvöld fyrir viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald morguninn eftir. Hann var grunaður um að bera ábyrgð á fjórum svikamálum. Hið fyrsta kom upp í lok sumars en það nýjasta fáeinum dögum áður en hann var handtekinn. Í síðastnefnda málinu varð ungur maður var við að 100 þúsund krónur voru horfnar af debetreikningi hans. Hann gerði viðskiptabanka sínum viðvart, sem leitaði þá til lögreglunnar í Reykjavík. Fyrri málin þrjú voru þá þegar til rannsóknar. Þær fjárhæðir sem stolið var af reikningum námu frá 100 þúsund krónum og upp í rúmlega 1,5 milljónir króna, samtals á þriðju milljón króna. Viðkomandi viðskiptabankar bættu viðskiptavinum sínum að fullu það sem maðurinn stal. Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, staðfesti í gær að maðurinn væri laus úr gæsluvarðhaldi. "Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef dró ekki úr notkun á netbönkunum þá daga sem þetta mál var í fréttum og næstu daga á eftir," segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja. "Þetta segir okkur að hefði fólk skynjað þetta öðruvísi en að um raunverulega hættu hafi verið að ræða, hefði það gerst." Guðjón segir sjálfsagt að brýna fyrir fólki að fylgjast vel með, þar með talið að uppfæra vírusvarnir í heimatölvum og verða sér úti um nýjustu uppfærslur. Hann sagði eflingu öryggisvarna í ákveðnu ferli. Leiðbeiningar hefðu verið gefnar út meðal annars á heimasíðum bankastofnana og þær hafi verið mikið lesnar. Hins vegar hafi ekki verið gerð könnun á því meðal viðskiptamanna banka og sparisjóða hvort þeir hafi aukið vírusvarnir í tölvum sínum. Spurður hvort fleiri tilkynningar hefðu borist um grun um þjófnaði úr heimabönkum í kjölfar umfjöllunar um þjófnaðarmálin sagði Guðjón svo ekki vera.
Innlent Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Fleiri fréttir Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Sjá meira