Innlent

Félagið fór að ráðum lækna

Jóhann Tómasson. Grein Jóhanns um Kára Stefánsson í Læknablaðinu hefur dregið dilk á eftir sér. Málinu hefur verið vísað til siðanefndar Læknafélagsins.
Jóhann Tómasson. Grein Jóhanns um Kára Stefánsson í Læknablaðinu hefur dregið dilk á eftir sér. Málinu hefur verið vísað til siðanefndar Læknafélagsins.

Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, segir að hann og ráðherra hafi fallist á það á sínum tíma að veita Kára Stefánssyni lækningaleyfi gegn því að hann gegndi héraðsskyldu þegar hann kæmi til Íslands aftur eftir nám í Bandaríkjunum. Leyfið hafi verið veitt vegna þess að án þess gat Kári ekki fengið stöðu við mjög þekktan háskóla í Banadríkjunum.

"Héraðsskyldan er svo lögð af árið 1985. Það er um svipað leyti og honum er veitt sérfræðingsleyfið, sem hann hefði ekki getað fengið nema hann hefði lækningaleyfi," segir Ólafur.

Hann telur því ekki að Kári hafi brotið samkomulag þeirra. Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóri Lækningafélags Íslands, segir að félagið hafi ekki verið að bregðast við kröfum Kára og biðja hann afsökunar með brottrekstri ritstjórans, líkt og Vilhjálmur Rafnsson, fyrrum ritstjóri Læknablaðsins, sagði í Fréttablaðinu í gær.

"Málið um grein Jóhanns er tekið upp á stjórnarfundi áður en við vitum nokkuð um skoðun Kára á því. Svo eflist umræðan meðal lækna og við bregðumst við því en ekki kröfum Kára þó hann hafi komið með þær á svipuðum tíma," segir Gunnar.

Vilhjálmur Rafnsson segir spurður um orð Gunnars að rekja megi ákveðna atburðarás af dagsetningunum. "Eftir stendur að orðið hefur við öllum kröfum Kára. Ég segi ekki meira en það."

Fram kom í Fréttablaðinu í gær að bæði Vilhjálmur og Kári voru ósáttir við þá ákvörðun bráðabirgðaritnefndar að fella tvær setningar úr grein umræddri grein Jóhanns.

Örn Bjarnason, sem sæti átti í bráðabirgða­ritstjórninni, vildi ekki segja af hverju sú leið var valin en benti á yfirlýsingu bráðabirgðaritstjórnarinnar í síðasta tölublaðið Læknablaðsins. Þar segir að nauðsynlegt hafi verið að fjarlægja ummæli Jóhanns sem gefa til kynna að Kári stundi lækningar án tilskilinna leyfa. Þau ummæli væru röng líkt og landlæknir segði í sama tölublaði.

"Ég lít svo á að þessu máli sé lokið og að ný ritstjórn komi algjörlega að hreinu borði," segir Jóhannes Björnsson, nýr ritstjóri Læknablaðsins. Hann segir að nýrrar ritstjórnar bíði það verk að setja ákveðnar verklagsreglur. Þær eiga meðal annars að skerpa á því hvernig beri að meðhöndla innsendar greinar.

Atburðarásin

1.septemberGrein Jóhanns Tómassonar birtist í Læknablaðinu.
12.septemberBréf kemur til ritstjórnarmanna Læknablaðsins frá lögmanni Kára þar sem þeir eru spurðir um aðild að birtingunni og undrun Kára yfir þeirri ákvörðun er lýst.
13.septemberGrein Jóhanns er tekin til umræðu á stjórnarfundi Læknafélags Íslands.
20.októberKári kemur kröfum sínum á framfæri við stjórnina a) að lýst sé yfir að rangt hafi verið að birta greinina, b) greinin sé tekin af vefnum, c) Kári sé beðinn afsökunar og d) að ef þetta verði ekki gert skuli ritstjóri Læknablaðsins látinn fara.
20.októberKári kærir Vilhjálm til siðanefndar.
25.októberÁkveðið að vísa grein Jóhanns til siðanefndar.
31.októberRitstjórnarmenn segja af sér að ritstjóra undantöldum.
8.nóvemberBráðabirgðastjórn tekur til starfa.
22.nóvemberNý ritstjórn tekur við Læknablaðinu.
  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×