Brotist inn í heimabanka og milljónir millifærðar 7. desember 2005 03:30
Tuttugu og fimm ára karlmaður situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að þjófnaði úr heimabönkum. Maðurinn var handtekinn í fyrrakvöld og í gærmorgun var hann úrskurðaður af Héraðsdómi Reykjavíkur í gæsluvarðhald í eina viku. Hann virðist tengjast fleiri en einu þjófnaðarmáli úr heimabönkum, því inn á reikninga á hans vegum hafa farið, með millifærslum úr tölvu, talsverðar upphæðir af reikningum annars fólks. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru fjögur einstök þjófnaðarmál úr heimabönkum til rannsóknar hjá lögreglunni í Reykjavík. Hið fyrsta kom upp í lok sumars en það nýjasta í vikunni sem leið. Þær fjárhæðir sem stolið hefur verið af reikningum nema frá 100 þúsund krónum og upp í rúmlega 1,5 milljónir króna. Í síðustu viku varð ungur maður þess var að 100 þúsund krónur voru horfnar af debetreikningi hans. Hann gerði forráðamönnum bankans viðvart og þeir leituðu til lögreglu, sem þegar hafði fyrri mál til rannsóknar. Þjófarnir hafa ekki ráðist á tölvukerfi bankanna heldur á einkatölvur fólks og þannig náð út peningum. Lélegar eða engar vírusvarnir eða eldveggir í tölvum auðvelda mönnum slík afbrot. Það getur meðal annars stafað af því að tölvunotendur hafi farið inn á sýktar heimasíður. Einnig getur verið um svokallaðan trójuhest að ræða sem berst í formi tölvupósts og inniheldur viðhengi með vírusum sem reyna að slökkva bæði á veiruvörnum og eldveggjum. Tölvunotendur geta látið fagmenn ganga úr skugga um að öryggisatriði búnaðar þeirra séu í lagi. Notendur heimabanka geta fylgst grannt með öllum hreyfingum á reikningum sínum með því að fá sendan tölvupóst í hvert sinn sem úttekt er gerð af debetreikningi. Einnig geta þeir fengið yfirlit yfir færslur á kreditkortareikning í lok hvers dags með sama hætti. Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, staðfesti að maður sæti í gæsluvarðhaldi af þessum sökum og að rannsókn stæði yfir. Hann kvaðst ekki vilja tjá sig efnislega um rannsóknina meðan hún stæði yfir.
Innlent Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Sjá meira