Innlent

Íslandsdeildin vill stofna viðskiptahóp

Jóhanna K. Eyjólfsdóttir. Hjá Íslandsdeild Amnesty International eru menn sem hafa áhuga á að skoða tengsl viðskipta og mannréttinda. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty International, segir að deildin komi til með að vinna meira á þessum nótum í framtíðinni.
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir. Hjá Íslandsdeild Amnesty International eru menn sem hafa áhuga á að skoða tengsl viðskipta og mannréttinda. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty International, segir að deildin komi til með að vinna meira á þessum nótum í framtíðinni.

Menn innan Íslandsdeildar Amnesty International hafa áhuga á að stofna viðskiptahóp til að skoða tengsl viðskipta og mannréttinda og jafnvel að hafa áhrif á mannréttindastefnu íslenskra fyrirtækja erlendis með það miklum kaupum á hlutabréfum að þau veiti aðgang að aðalfundum og atkvæðisrétt. Verið er að skoða hvaða áhrif fríverslunarsamningar og aðrir alþjóðlegir samningar hafa á mannréttindi.

Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, segir að deildin hafi ekki enn farið út í það að fjárfesta í litlum hlutum ennþá en hugsanlega verði breyting á því. Íslandsdeildin komi til með að vinna meira á þessum nótum í framtíðinni og komi inn á alheimsvæðingu, mansal, flutning á fjármunum og vinnuafli mmilli landa þar sem fólk njóti ekki þeirra lögbundnu réttinda sem það ætti að gera.

Ákvarðanir sem teknar eru hjá stórfyrirtækjum geta haft meiri áhrif á líf fólks en ákvarðanir teknar í þingsölum. Amnesty International hefur verið að skoða áhrif stórfyrirtækja á líf fólks í námavinnslu og olíuvinnslu og í löndum þar sem engin verkalýðshreyfing er eins og í Kína.

"Íslandsdeildin kemur til með að vinna meira í þessum málum í framtíðinni þó að við séum ekki farin að kaupa hlutabréf til að geta haft áhrif eins og breska, bandaríska og sænska deildin eru farnar að gera. Í sumum löndum er það eina aðferðin til að ná eyrum þeirra sem stjórna og svo er líka mikil vopnaframleiðsla í þessum löndum," segir hún.

Amnesty Business Group í Svíþjóð hefur keypt hluti í félögum í sænsku kauphöllinni með góðum árangri. "Þetta er góð aðferð. Í ár keyptum við í sjö félögum og í fyrra keyptum við í 14 fyrirtækjum á aðallista. Þessi fyrirtæki höfðu enga stefnu í mannréttindamálum," segir Lars A. Stålberg hjá Amnesty Business Group, en í árslok voru öll félögin komin með slíka stefnu.

Samkvæmt vefútgáfu Dagens Nyheter hefur Amnesty þá stefnu að kaupa hlutabréf í sænskum félögum sem hafa starfsemi í eða verslun við Kína. Viðskiptaherferð er fyrirhuguð hjá Amnesty árið 2007.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×