Landhelgisgæslan að þrotum komin 6. desember 2005 03:30 Í fjárlögum er gert ráð fyrir að ríkið leggi Landhelgisgæslunni til 1,3 milljarða króna. Óvíst er hvort það fé hrekkur til rekstrarins. Mynd/guðmundur
Landhelgisgæslan stendur veikum fótum og ekki er fyrirséð að endar nái saman á næsta ári. Staða Gæslunnar er mjög veik. Það vantar peninga í reksturinn, segir Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, en hann situr í fjárlaganefnd. "Ég má ekki tala um þetta mál," segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. "Það á að kaupa nýtt skip og flugvél en það skortir fé til þess að reka þetta," segir Georg. Heimildir herma að fjárhagsvandi Landhelgisgæslunnar sé svo alvarlegur að rekstrarhorfurnar fyrir árið 2006 séu svipaðar og hjá fyrirtæki sem stefni í gjaldþrot. Gæslan á útistandandi björgunarlaun og óinnheimt úr Landhelgissjóði, segir Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og varaformaður fjárlaganefndar. Hann segir að þarna sé um heilmikla peninga að ræða. "Við töldum samt að það þyrfti að styrkja stofunina og ákváðum þess vegna að setja fjörutíu milljónir í reksturinn í fjáraukalögum sem voru afgreidd í síðustu viku," segir Einar Oddur. Þessar fjörutíu milljónir eru ætlaðar til þess að endar nái saman á þessu ári. Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs er gert ráð fyrir að Landhelgisgæslan hljóti rúma 1,3 milljarða króna úr ríkissjóði. Til samanburðar má geta að þetta er þetta svipað og framlag ríkisins til reksturs þjóðkirkjunnar. "Landhelgisgæslan, eins og aðrar fjárfrekar stofnanir, gerir náttúrulega kröfur um peninga. Þeir réðu þarna nýjan fjármálastjóra og þá lagðist einhvern veginn niður innheimtan," segir Einar Oddur og telur að ástandið sé orðum aukið.
Innlent Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Innlent Fleiri fréttir Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Sjá meira