Kjör öryrkja hér með þeim lökustu í Evrópu 2. desember 2005 04:00 "
Það er afskaplega dapurt að vera á svipuðum slóðum og Spánn og Portúgal þegar kemur að málum sem varða öryrkja," segir Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands. Hann kynnti í gær nýja skýrslu sína um örorku og velferð á Íslandi og í öðrum löndum og er niðurstaða hans áfellisdómur yfir aðgerðum stjórnvalda gagnvart öryrkjum síðustu tíu árin. Skýrslan sýnir að heildarútgjöld ríkisins til örorkumála eru vel undir meðallagi Evrópuríkja og að þvert á það sem haldið hefur verið fram eru öryrkjar ekki margir hér í samanburði við nágrannaþjóðirnar. Sé borinn saman árangur OECD ríkjanna í að veita öryrkjum viðunandi fjárhagsafkomu og samfélagsleg úrræði er Ísland á sama róli og þjóðir á borð við Spán og Portúgal. Stefán segir það lélegt í þjóðfélagi sem býr við mikið ríkidæmi. "Það er lélegt að vera á svipuðu róli hvað þessi mál varðar og suður-evrópskar þjóðir því þær eru þekktar fyrir veikburða velferðarkerfi. Allt annað en er uppi á teningnum hér á norðlægari slóðum þar sem eru þær þjóðir sem við ættum að vera að bera okkur saman við því við höfum sömu tækifæri og þær." Telur Stefán að skipulag starfsendurhæfingarmála sé sundurlaust, stórauka þurfi atvinnutækifæri allra öryrkja og að velferðarkerfið eins og það er í dag haldi mörgum í fátæktargildru vegna skerðingarreglna og naumra kjara. Mikið verk sé óunnið og óásættanlegt að öryrkjar margir hverjir í þessu ríka landi búi við þær aðstæður að vera fastagestir hjá ölmusustofnunum samfélagsins. Undir þetta tekur Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalagsins. "Skýrsla Stefáns setur hlutina í samhengi. Við erum í botnsætum hvað velferð öryrkja varðar í samanburði og ljóst að átaks er þörf. Stokka þarf upp almannatryggingakerfið, endurskoða lög um málefni fatlaðra og brýnt að endurskoða hvernig öryrkjar geti orðið virkir þátttakendur í að skapa hér samfélag sem sannarlega er hægt að segja að sé fyrir alla. Ég neita að trúa að til sé sá stjórnmálamaður á Íslandi sem vill að fólk búi við þau kröppu kjör sem fatlaðir búa við í dag og skýrslan staðfestir."
Innlent Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira