Innlent

Forgangsmál að fá nýtt hús

Laugarnesvegur 91. Aðstaða myndlistardeildar Listaháskólans.
Laugarnesvegur 91. Aðstaða myndlistardeildar Listaháskólans.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands, undirrituðu á mánudag samning um rekstur listmenntunar á háskólastigi. Jafnframt greindi ráðherra frá því að í fjárlögum ársins 2006 yrði heimildarákvæði um að selja húsnæði myndlistardeildar Listaháskólans við Laugarnesveg 91.

Ráðherrann tók fram að hún teldi það kraftaverki líkast hversu vel hefði gengið að byggja upp skólann við núverandi aðstæður og sagði að það væri forgangsmál á sviði háskólamála að byggja framtíðarhúsnæði fyrir Listaháskólann.

Spurður hvort salan á húsnæði myndlistardeildarinnar eigi eftir að raska þeirri starfsemi sem þar er hýst segir Hjálmar H. Ragnarsson, rektor skólans, að hann búist ekki við því.

"Við göngum út frá því að húsið verði ekki afhent fyrr en lausn er komin fyrir þá starfsemi sem er þar núna," segir hann.

Íslenska ríkið keypti húsið á sínum tíma og afhenti það Myndlistar- og handíðaskóla Íslands til afnota. Að sögn Kristjáns Steingríms Jónssonar, deildarforseta myndlistardeildar, þjónar húsnæðið ekki lengur tilgangi sínum, "enda upprunalega byggt sem sláturhús".

Rektor Listaháskólans líst vel á að fá nýtt húsnæði fyrir skólann. "Það er ekki síst fyrir hvatningu frá okkur sem þetta mál er tekið fyrir," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×