Innlent

Aukin umsvif í Rússlandi

Rússnesk yfirvöld og Norræna ráðherranefndin hafa náð samkomulagi um að opna norræna upplýsingaskrifstofu í rússnesku borginni Kaliningrad. Sérstök lega Kaliningrad, á milli Litháens í austri og Póllands í vestri, býður upp á áhugaverð tækifæri í ýmsum verkefnum á svæðinu að mati ráðherranefndarinnar.

Norðurlöndin hafa unnið að mörgum verkefnum í Rússlandi að undanförnu og má þar nefna skolphreinsistöð sem var opnuð í Pétursborg í september á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×