Þekkt gáfumenni meðal þátttakenda í Meistaranum 1. desember 2005 09:00 Mörður Árnason er einn þeirra sem mun keppa um titilinn Meistarinn en auk hans má nefna Stefán Pálsson og Ólínu Þorvarðardóttur sem eflaust ætla láta mikið að sér kveða.
Á annan í jólum byrjar nýr spurningaþáttur á Stöð 2 sem ber heitið Meistarinn. Þar mun Logi Bergman Eiðsson leita logandi ljósi að "gáfaðasta" manni Íslands. Nýverið fóru fram próf á fjórum stöðum um land allt og tóku alls 250 manns þátt þar af 190 á stórhöfuðborgarsvæðinu. "Það var mikil stemning," segir Logi Bergman þegar hann var spurður hvernig til hefði tekist. "Grunnhugmyndin er að finna hver sé bestur í spurningakeppnum," útskýrir Logi. Meistarinn er ekki format þáttur að erlendri fyrirmynd heldur ramm - íslensk dagskrárgerð. "Það verður allt gert til að halda spennunni út allan þáttinn," segir Logi sem sjálfur er fullur eftirvæntingar fyrir þættinum. 22 keppendur eru skráðir til leiks í Meistaranum. Sextán voru valdir úr úrtökuprófunum en sex komu að utan. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru margir af þeim þjóðþekktir fyrir kunnáttu sína á spurningasviðinu og má þar nefna Gettu Betur dómaranna Stefán Pálsson og Ólínu Þorvarðardóttur. Alþingismaðurinn og ofurheilinn Mörður Árnason ætlar einnig að mæta til leiks samkvæmt heimildum blaðsins en þegar hefur verið dregið hverjir lenda saman og lofar Logi að engin ætti að vera svikin af fyrstu rimmunni. Þá upplýsir hann að feðgar hafi komist í gegnum prófin og því gæti allt eins orðið mikil fjölskyldudramatík í þáttunum ef þeir lentu á móti hvor öðrum. Sá sem stendur einn uppi hreppir titilinn Meistarinn og fimm milljónir íslenskra króna.
Menning Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira