Innlent

Skortir samráð um gríðarlega hagsmuni

Árni Magnússon félagsmálaráðherra
Árni Magnússon félagsmálaráðherra

Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við lánveitingar Íbúðalánasjóðs til banka í kjölfar umfangsmikillar uppgreiðslu lántakenda hjá sjóðnum. Frá september í fyrra fram á mitt þetta ár greiddu lántakendur upp 158 milljarða króna hjá sjóðnum.

Í skýrslu sem Ríkisendurskoðun birti í gær segir að tryggara hafi verið að skoða betur heimildir sjóðsins og treysta lagagrundvöll fyrir aðgerðum sjóðsins þegar hann þurfti að tryggja áframhaldandi tekjur þrátt fyrir uppgreiðsluna.

Fram kemur að frá áramótum hefur Íbúðalánasjóður með sérstökum samningum lánað bönkum og sparisjóðum 85 milljarða króna til allt að 40 ára á grundvelli reglna og fyrirmæla um áhættustýringu, sem Ríkisendurskoðun telur að séu að ýmsu leyti óskýrar.

Ríkisendurskoðun telur hlutverk og umfang starfsemi Íbúðalánasjóðs á húsnæðis- og fjármagnsmarkaði þess eðlis að hafa þurfi víðtækt samráð helstu stjórnvalda um breytingar á starfseminni.

"Að mati Ríkisendurskoðunar voru þær aðgerðir sem sjóðurinn taldi sig nauðbeygðan til að grípa til á sviði áhættustýringar haustið 2004 þess eðlis að æskilegt hefði verið að bæði forsvarsmenn hans og félagsmálaráðuneytið ... hefðu haft samráð við þau stjórnvöld sem helst koma að fjárstjórn ríkisins og stjórn efnahagsmála."

Ríkisendurskoðun telur að með umræddum lánasamningum við banka og sparisjóði hefði Íbúðalánasjóður stigið ákveðið skref í þá átt að breyta hlutverki sínu í þá veru að verða einnig endurfjármögnunarsjóður. "Langeðlilegast er að löggjafinn sjálfur taki slíkar ákvarðanir enda mjög brýnt að hafa víðtækt pólítísk samráð um slík mál," segir í skýrslunni.

Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir skýrsluna staðfesta að Íbúðalánasjóður hafi farið að lögum við gerð lánasamninga og komið í veg fyrir tjón sjóðsins vegna uppgreiðslu lána. Skýrslan geti þó jafnframt gefið tilefni fyrir löggjafann til þess að endurskoða lög um sjóðinn og hlutverk hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×