Missti báða fæturna í hörmulegu bílslysi 22. nóvember 2005 03:30 Særún Sveinsdóttir „
Ég held ég hafi aldrei misst meðvitund. Lögreglumennirnir töluðu við mig þar sem ég lá í götunni eftir áreksturinn. Ég gerði mér ekki grein fyrir hversu alvarlega ég var slösuð en ég vissi að yfir mér var þungt farg. Lögreglumennirnir sögðu mér síðan að þeir þyrftu að lyfta bílnum ofan af mér,“ segir Særún Sveinsdóttir Williams, sem missti báða fætur, rétt fyrir ofan hné, í hörmulegu bílslysi í Omaha í Nebraskaríki í Bandaríkjunum. Slysið varð á fjölfarinni hraðbraut snemma morguns fyrir réttri viku. Slysið varð með þeim hætti að Særún ók pallbíl, sem hlaðinn var pokum með haustlaufum á leið til vinnu. Hún varð þess skyndilega vör að pokar höfðu fallið af palli bílsins, þannig að hún afréð að stöðva hann og kippa pokunum aftur upp á pallinn. Þegar hún var rétt um það bil að ljúka verkinu varð hún fyrir bíl sem kom aðvífandi. Svo einkennilega vildi til að bílstjóri þess bíls, Kenneth Cooks, er samstarfsmaður Særúnar hjá flutningafyrirtækinu Deffenbaugh. Cooks steig út til þessa að reyna að aðstoða Særúnu og vísa annarri umferð frá henni, þar sem Særún lá á götunni, þegar kona keyrði á kyrrstæðan bíl Cooks, með þeim afleiðingum að bíllinn kastaðast á Cooks sem varð til þess að hann kastaðist um tuttugu metra og hlaut alvarlega höfuðáverka. Bíll Cooks endaði svo á Særúnu þar sem hún lá á götunni. Særún telur að það hafi verið þá sem hún missti fæturna. Bílstjóri þriðja bílsins slapp ómeiddur. „Ég hef það sæmilegt miðað við aðstæður,“ segir Særún en hún átti að fara í skurðaðgerð í gær, eina af mörgum sem eru fyrirhugaðar. Síðan tekur við endurhæfing sem mun vara næstu mánuði. Særún er einstæð fimm barna móðir og eru þrjú barnanna búsett hjá henni. Hún hefur verið búsett í Omaha frá árinu 1993.
Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira