Kjör aldraðra batna minnst 21. nóvember 2005 03:30 Ráðstöfunartekjur ellilífeyrisþega hafa ekki aukist í samræmi við aðra í þjóðfélaginu. Einstaklingur með hundrað þúsund króna tekjur greiðir nú tæpar tíu þúsund krónur í skatta. Með sömu rauntekjur við upptöku staðgreiðslu skatta árið 1988 greiddi sami einstaklingur ekki krónu enda voru skattleysismörkin hærri en tekjur hans þá.
Kaupmáttur ráðstöfunartekna meirihluta aldraðra hefur ekki hækkað neitt í líkingu við það sem stjórnvöld vilja meina samkvæmt nýjum útreikningum Landssambands eldri borgara. Sýna þeir útreikningar að kaupmáttur ráðstöfunartekna venjulegs ellilífeyrisþega frá árinu 1995 hefur aðeins hækkað um tæp tíu prósent og í raun lækkað sé farið aftur til ársins 1988. Dæmi er tekið af ellilífeyrisþega sem er í sambúð. Meðaltekjur hans úr lífeyrissjóði eru 47.600 krónur sem þýðir að kaupmáttur ráðstöfunartekna hans hefur aukist um 9,6 prósent frá 1995. Sé farið lengra aftur, til ársins 1988, hefur kaupmáttur þessa sama manns beinlínis rýrnað um 1,6 prósent. Sé litið á þróun kaupmáttar ráðstöfunartekna ellilífeyrisþega með enn hærri tekjur úr lífeyrissjóði er staðan enn verri. Þannig hefur kaupmáttur ráðstöfunartekna einstaklings með 144 þúsund króna ellilífeyri aðeins aukist um 2,1 prósent síðustu tíu ár. Þessar tölur eru í ósamræmi við yfirlýsingar Halldórs Ásgrímssonar að almennur kaupmáttur ráðstöfunartekna hafi aukist hérlendis um allt að 60 prósent á síðustu tíu árum. Gögn þessi hafa þegar verið lögð fram fyrir sérstaka samráðsnefnd um öldrunarmál, en þar sitja þeir Pétur Guðmundsson og Einar Árnason frá Landssambandi eldri borgara auk þeirra Hallgríms Guðmundssonar og Eyþórs Benediktssonar frá fjármálaráðuneytinu og Hrannar Ottósdóttur og Jóns Sæmundar Sigurjónssonar frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Pétur segir engar athugasemdir hafa verið gerðar við útreikningana enda gefi þeir rétta mynd af raunverulegri stöðu mála meðal aldraðra og ekkert hægt að véfengja þar. "Það er staðreynd að ellilífeyrisþegar hafa setið eftir og allt tal um annað er bara þessi venjulegi leikur að tölum sem embættismenn eru svo hrifnir af í því skyni að slá ryki í augu fólks." Pétur hefur um alllangt skeið staðið í eldlínunni fyrir eldri borgara en segist ekki sérstaklega bjartsýnn hvað varðar störf þeirrar nefndar sem hann situr nú í. "Nei það get ekki sagt. Það er ekkert nýtt að okkur er oft ýtt til hliðar en ég hefði kannski haldið að þar sem líða fer að kosningum að þessir háu herrar hefðu vit á að taka betur á móti okkur gamla fólkinu enda stór hópur sem hefur kosningarétt."
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Fleiri fréttir Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Sjá meira