Þetta er ekki ævisaga heldur baráttusaga 15. nóvember 2005 23:00 Jónsbók og viðfangsefnið sjálft. Bókin er alls fimm hundruð síður og hana prýðir ljósmyndir sem aldrei hafa komið fyrir almenningssjónir.
Í dag kom út Jónsbók, saga Jóns Ólafssonar athafnamanns, sem er skráð af Einari Kárasyni. Bókin kom úr prentun í gær og var Jón mættur í prentsmiðjuna Odda þar sem hann beið eftir fyrstu eintökunum. Helga eiginkona hans og Friðrik sonur hans voru með honum í för og biðu jafn spennt eftir að sjá útkomuna. Eintökin áttu að koma um þrjúleytið en smá seinkun varð á. Jón tók öllu með stóískri ró og sagði sögu af kvikmyndaframleiðanda hjá Paramount á meðan. Ef einhver veit að tíminn er peningar þá er það Jón Ólafsson. Jón segir bókina ekki vera ævisögu heldur baráttusögu. Sjálfur stóð hann í útgáfustarfsemi í þrjátíu ár en er nú orðinn að útgáfuefni og sagði þá tilfinningu vera undarlega. "Það er skrýtið að vera kominn hinum megin við borðið," útskýrir hann. Í því augnabliki opnaðist hurðin inn í prentsalinn og þá gafst tækifæri til að líta á gripinn. "Þetta er ég," sagði Jón og benti á þykka doðranta sem biðu eftir því að vera pakkað inn. Yrkisefnið vildi þó ekkert gefa upp um efni bókarinnar og sagðist ætla að tjá sig um efni hennar í dag. "Ég er víst í fjölmiðlabindindi," útskýrði hann og benti á Pál Valsson, útgáfustjóra hjá Eddu. Hann brosti bara. "Það er allavega búið að bóka þetta," sagði athafnamaðurinn og hló. Fjölskyldan flettir í gegnum bókina, sem er um fimm hundruð blaðsíður. Hana prýða ljósmyndir sem aldrei hafa komið fyrir almenningssjónir. Helga og Friðrik sjá myndir af sér og skella upp úr. Fjölskyldan skoðar síðan bókina saman og stoppar við sumar síðurnar. "Þetta er mjög smart og ég er virkilega ánægður með það sem Edda hefur gert. Umgjörðin er æðisleg," sagði Jón. Útgáfustjóranum var augljóslega létt enda veit Jón það af fyrri reynslu að kápan skiptir ekki síður máli en innihaldið. "Það er ekki létt að gera mér til geðs," bætti hann við og brosti. Í dag verður útgáfuteiti haldið og öllum sem nefndir eru á nafn í bókinni hefur verið boðið. Jón vonaðist til að sem flestir sæju sér fært að mæta. "Það er þannig að fyrir mér eru allir jafnir, hvort sem það eru vinir eða fjandmenn."
Menning Mest lesið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Patrick Muldoon er látinn Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Lífið Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Lífið samstarf „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Fleiri fréttir Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Sjá meira