Farangur verður aftur að Blóðböndum 10. nóvember 2005 22:00 Jóhann Jóhannsson semur tónlistina við myndina og notaðist meðal annars við Fílharmóníusveitina í Prag.
Kvikmyndin Blóðbönd, sem áður gekk undir nafninu Farangur, er nú að verða tilbúin til sýningar. Snorri Þórisson, framkvæmdastjóri kvikmyndafyrirtækisins Pegasus, segir að þeir hafi orðið ásáttir um upprunalega nafnið enda snerti myndin einmitt blóðbönd þegar hann er inntur eftir nafnabreytingunni. Það er Árni Ólafur Ásgeirsson sem leikstýrir myndinni en Jóhann Jóhannsson semur tónlistina og er því verki nú lokið. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Jóhann fæst við kvikmyndatónlist en hann á meðal annars heiðurinn að tónlistinni við Dís. Framleiðandinn segir að útkoman sé mjög flott og að tónlistarmaðurinn hafi meðal annars notast við Fílharmóníusveitina í Prag. Snorri og Árni Ólafur fóru fyrir skemmstu til Haugasunds þar sem þeir kynntu myndina og sýndu tuttugu mínútna brot úr henni. „Það voru allir mjög hrifnir og hún mæltist vel fyrir," segir Snorri og líkir myndinni við það sem er að gerast í danskri kvikmyndagerð. "Þetta er saga úr raunveruleikanum, gluggi inn í lífið,“ segir hann. Blóðbönd segir frá manni sem uppgötvar að hann er ekki faðir tíu ára sonar síns. Það eru Hilmar Jónsson og Margrét Vilhjálmsdóttir sem leika aðalhlutverkin auk Arons Brink sem leikur strákinn en þetta er fyrsta kvikmyndahlutverk hans. "Hann stendur sig mjög vel," segir Snorri um hinn unga leikara.@Mynd -FoMed 6,5p CP:pétur og ásta í blóðböndum Hilmar Jónsson leikur Pétur sem kemst að því að hann er ekki faðir tíu ára sonar síns. Auk hans leikur Margrét Vilhjálmsdóttir og Aron Brink í myndinni.Handritið var hugmynd leikstjórans og skólafélaga hans úr kvikmyndaskólanum í Tékklandi. „Jón Atli Jónasson tók síðan við því og á mikinn heiður skilinn,“ útskýrir Snorri. Blóðbönd er frekar ódýr mynd miðað við þær fjárhæðir sem settar eru í kvikmyndagerð í dag að mati Snorra en áætlaður kostnaður er í kringum níutíu milljónir. Hann segir að þeir hafi ekki ákveðið frumsýningardag enda eigi öll smáatriði að vera á hreinu. Snorri reiknar þó með því að myndin komi í kvikmyndahús um jól eða áramót. Það er því ljóst að kvikmyndahúsagestir fá að minnsta kosti að melta tvær íslenskar kvikmyndir með jólasteikinni því A Little Trip to Heaven í leikstjórn Baltasars Kormáks verður að öllum líkindum frumsýnd annan í jólum.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira