Undrabarnið í Hollywood 10. nóvember 2005 18:00 Cameron Crowe og eiginkona hans. Þegar Crowe sameinar tónlist og þekkingu sína á heimi hennar eru fáir sem standast honum snúninginn.
Í Almost Famous ferðaðist William Miller með rokksveitinni Stillwater um Bandaríkin þver og endilöng. Úr þessari rússíbanareið varð til blaðagrein sem birtist í tímaritinu Rolling Stones. Stjórnendur blaðsins höfðu ekki hugmynd um að Miller væri stráklingur sem aldrei hafði komist í kynni við eiturlyf, ást eða kynlíf (einkennisorð hippatímabilsins). Þótt það sé kannski full öfgakennt að líkja Miller við Cameron Crowe sagðist leikstjórinn engu að síður hafa byggt handritið að einhverjum hluta á eigin lífi. Staðreyndir málsins eru líka þær að Crowe var ekki orðinn fulltíða karlmaður þegar greinar hans um tónlist höfðu birst í blöðum á borð við Los Angeles Times, Cream, Playboy og Penthouse. Það var móðir Crowe sem kom snemma auga á þá guðsgjöf drengsins að sú kúnst að skrifa var eitthvað sem væri honum eðlislægt. Crowe slapp við bæði leikskóla og fyrstu tvo bekki grunnskólans. Leikstjórinn var kominn í framhaldsskóla þrettán ára gamall og útskrifaðist þaðan þegar hann var rétt skriðinn yfir fimmtán ára aldurinn. Honum var í kjölfarið boðið starf hjá Rolling Stones en Crowe varð síðar aðstoðarritstjóri blaðsins. Þegar yfir lauk hafði þessi stráklingur tekið viðtöl við rokkgoðsagnir á borð við Bob Dylan, Neil Young, David Bowie, meðlimi bresku rokkgrúppunnar Led Zeppelin auk Eric Clapton. Þegar Cameron var 22 ára fannst honum tímabært að breyta aðeins til. Crowe þurfti ekki að dulbúast neitt sérstaklega mikið þegar hann smyglaði sér inn í framhaldsskóla í Suður-Kaliforníu og rannsakaði framhaldsskólalífernið. Þessi ferð Crowes varð síðan grunnurinn að bókinni Fast Times at Ridgemont High sem sló strax í gegn. Kvikmyndafyrirtækið Universal fékk rithöfundinn unga til að skrifa kvikmyndahandrit upp úr bókinni. Ungir upprennandi leikarar voru fengnir í aðalhlutverk, þeirra á meðal Sean Penn, Jennifer Jason Leigh, Forest Whitaker og Nicolas Cage. Um leið og þetta markaði upphaf ferils þessara stórleikara sá Crowe að þarna var kominn miðill sem hann vildi nýta sér enn frekar. Fyrsta leikstjórnarverkefni hans leit dagsins ljós árið 1989 þegar John Cusack og Iona Sky léku í Say Anything. Í kjölfarið fylgdi Singles þar sem Matt Dillon og Bridget Fonda fóru fyrir fríðum hópi ungra leikara sem heilluðu heimsbyggðina upp úr skónum. Þarna mátti einnig greina fjórmenninga frá Seattle sem síðar áttu eftir að valda straumhvörfum í rokkheiminum með hljómplötunni Ten því "grunge" sveitin Pearl Jam lék stórt hlutverk í myndinni. Það var þó ekki fyrr en að Cuba Gooding Jr. bað Tom Cruise um að sýna sér peningana að Crowe skaust fyrir alvöru upp á hinn skæra stjörnuhimin. Jerry Maguire sló í gegn svo um munaði og hreppti fjórar óskarsverðlaunatilfnefningar þar á meðal sem besta myndin, besta handrit og besti leikur í aukahlutverki sem Gooding fékk ( eins og frægt er orðið). Endurgerð Crowe á spænsku myndinni Abre los Ojos vakti ekki jafn mikla hrifningu þó að lag Pauls McCartney hafi verið tilnefnt til óskarsverðlauna. Nýjasta mynd hans, Elizabethtown, hefur ekki fengið háa einkunn hjá erlendum vefmiðlum enda virðist Crowe vera kominn langt út fyrir sitt áhugasvið.
Menning Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira