Gyllti kötturinn 8. nóvember 2005 10:00 Eigendurnir Ása Ottesen, Jóna Elísabet Ottesen og Hafdís Þorleifsdóttir eru eigendur Gyllta kattarins. "
Það hefur verið draumur okkar mjög lengi að opna tískubúð og ég er búin að vera að tala um þetta frá því ég var lítil," segir Ása Ottesen. "Ég er búin að vinna í tískubransanum ótrúlega lengi, hef bæði unnið sem stílisti og var til dæmis verslunarstjóri í Centrum. Jóna systir mín var verslunarstjóri í Sautján Jeans og Hafdís var aðstoðarverslunarstjóri í Companys í Kringlunni. Svo allt í einu ákváðum við að kýla á þetta og loksins er draumurinn orðinn að veruleika." Að sögn Ásu er undirbúningurinn búinn að vera langur og strangur og segir hún svona lagað mikla vinnu. "Við erum varla búnar að sofa því hugurinn er alltaf við þetta. Við vorum alltaf að koma með nýjar og nýjar hugmyndir en þetta hefur samt gengið mjög vel. Erum bæði búnar að fara til London og Amsterdam til að kaupa fötin en hyggjumst síðar meir líka fara til Kaupmannahafnar, Parísar og Berlínar og kanna Evrópu aðeins betur." Adidas í gamla stílnum Búðin mun ekki einungis selja notuð föt heldur munu stúlkurnar einnig bjóða upp á ýmsa skemmtilega hluti eins og síma, klukkur og þess háttar auk þess sem ný föt verða einnig fáanleg í búðinni. "Við vildum ekki bjóða einungis upp á notaðar vörur heldur vildum við frekar hafa þetta eitthvað blandað og búðin fær þannig fjölbreytilegan blæ. Við verðum bæði með íslenska hönnun og erlenda auk þess sem við seljum ýmiss konar skemmtilegt skran og erum með alls konar föt, allt frá íþróttafötum upp í síðkjóla. Þetta er bara partíbúð og alls ekki fyrir neinn sérstakan aldur heldur ættu konur á öllum aldri að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Við erum einnig með frábær "oldschool" íþróttaföt frá Adidas sem eru ekki notuð heldur eru einhvers konar prufur og svo langar okkur mjög mikið að selja vínylplötur í framtíðinni."Harður heimur@Mynd -FoMed 6,5p CP:leggings Þessar minna örlítið á níunda áratuginn og myndu sóma sér vel undir flottum kjól.Mörgum finnst notuð föt vera skrambi dýr á Íslandi og hafa viðskiptavinir líklega oft velt fyrir sér hver ástæðan fyrir því sé. Margir telja að verið sé að okra á kaupendunum. "Við vorum alveg sammála um að notuð föt á Íslandi væru of dýr og okkur langaði að hafa fötin ódýrari en gengur og gerist hérna. Hins vegar komumst við að því að þegar öll gjöld eru komin, skattar og tollar og þess háttar, kostnaður við að fara út og kaupa fötin og reka búðina þá er erfitt að halda verðinu mjög lágu. Eina leiðin til að finna ódýru fötin er að versla á flóamörkuðum. Þetta er harður heimur og það er mjög erfitt að finna flott "second hand" föt því það vill enginn segja manni hvaðan fötin í búðunum koma. Okkur hefur hins vegar tekist að halda verðinu mjög sanngjörnu og í raun lágu miðað við Íslandsmarkað."Allt að smella saman@Mynd -FoMed 6,5p CP:töff peysa Tíglamunstrið er algjörlega klassískt en mjög heitt núna eins og allt sem minnir á gamlan stíl.Ása hefur ekki bara reynslu á tískusviðinu heldur hefur hún einnig stundað nám í tískufræðum. "Ég lærði tísku- og markaðsfræði í tvö ár í London og svo um síðustu jól fór ég á stílistanámskeið í St. Martins skólanum. Við erum hins vegar allar með þetta í blóðinu og lifum og hrærumst í tískuheiminum." Aðspurð hvaðan nafnið Gyllti kötturinn kemur segir hún Hafdísi hafa stungið upp á því. "Við vorum búnar að velta þessu fyrir okkur fram og aftur og vorum með hugmyndabanka þar sem vinir og vandamenn komu með uppástungur. Hafdís frænka kom með þetta nafn og þó við værum ekki vissar fyrst þá erum við mjög ánægðar með þetta núna. Þetta er allt að smella saman. Við erum búnar að innrétta búðina en maðurinn hennar Hafdísar er smiður og hjálpaði okkur í því. Búðin er orðin mjög hlýleg og í þessum gamla stíl og við erum bara ótrúlega ánægðar og spenntar að takast á við nýjar áskoranir í þessum heimi. Okkur finnst líka mjög skemmtilegt að búðin er staðsett í Austurstræti því það hefur einmitt vantað meira líf í þá götu - eins og var í gamla daga. Vonandi náum við að draga fólk hingað niður eftir með fínu búðinni okkar."
Menning Mest lesið Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Tuttugu gellur á einu kvöldi Lífið Bonnie Tyler vöknuð úr dái Tónlist Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Fleiri fréttir Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjá meira