Innlent

Vinstri grænir:

Forysta vinstri grænna Steingrímur J. Sigfússon formaður og Katrín Jakobsdóttir varaformaður fagna undir lok landsfundar í gær. fréttablaðið/e.Ól
Forysta vinstri grænna Steingrímur J. Sigfússon formaður og Katrín Jakobsdóttir varaformaður fagna undir lok landsfundar í gær. fréttablaðið/e.Ól

"Meðaltalið sýnir tuttugu prósenta óútskýrðan launamun á körlum og konum sem er hreint ótrúleg staða. Við lítum á þetta sem mannréttindamál en ekki aðeins sem skyldu hvers og eins að biðja um hærri laun. Það er bara ekki það einfalt," segir Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, að loknum landsfundi flokksins í gær.

Eins og fram hefur komið skilgreina vinstri grænir sig nú sem róttækan flokk feminískra sjónarmiða. "Ungar konur voru mjög áberandi á þessum stærsta landsfundi sem við höfum haldið," segir Katrín einnig, en kosið var til stjórnar flokksins og eru konur þar í meirihluta.

Fundurinn samþykkti ­fjölda­­­ ályktana og voru þar á meðal ályktanir um breytingar á stjórnarskrá þar sem flokkurinn mæl­ist til þess að reglur um sjálfbæra þróun og umhverfismál verði stjórnarskrárbundnar.

Einnig vill flokkurinn að réttur allra til heilnæms vatns ásamt því að landið verði án sýkla-, efna- og kjarnorkuvopna komi inn í stjórnarskrána.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna segir að flokkurinn hafni því alfarið þeirri ályktun sem landsfundur Sjálfstæðisflokks sendi frá sér að málsskotsrétti forsetans verði fórnað fyrir óljós ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur: "Við erum ekki tilbúin í einhverja verslun um 26. grein stjórnarskrárinnar."

Katrín segir að næst á dagskrá sé að taka til við vinnu í umhverfismálum. Bæði Steingrímur og Katrín voru ein í framboði til forystu í flokknum og voru því sjálfkjörin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×