Karlar selja sig á börum 9. mars 2005 00:01
Karlar sem selja sig hafa gjarnan verið misnotaðir kynferðislega á yngri árum og leiðst síðan út í neyslu. Þeir hafa fjármagnað neysluna með vændi. Íslenskir vændiskarlar eru ekki í skipulögðum klámiðnaði heldur selja sig yfirleitt sjálfir öðrum körlum á börum borgarinnar. "Vændið á sér fyrst og fremst stað hér á landi og mennirnir hafa ekki verið í skipulögðum klámiðnaði heldur bara bjargað sér sjálfir. Þeir hafa selt sig á börum og þá fyrst og fremst öðrum körlum," segir Guðrún Jónsdóttir, félagsráðgjafi og starfskona Stígamóta. Fjöldi vændismanna sem hefur leitað aðstoðar Stígamóta hefur rokkað milli ára. Í fyrra leitaði einn karlmaður aðstoðar vegna vændis en þeir hafa verið mun fleiri á undanförnum árum. Guðrún segir að algengara sé að karlmenn sem leita til Stígamóta vegna vændis hafi gert það eftir að þeir hafa hætt neyslu en konur. Ekki er þó hægt að alhæfa fullkomlega þar sem karlmennirnir eru svo fáir. Karlmennirnir séu í yngri kantinum þegar þeir leiti sér hjálpar og kannski sé þar um kynslóðaskipti að ræða því að eldri karlar hafi örugglega líka upplifað ofbeldi. "Í rannsókn sem Rannsóknir og greining gerðu á kynlífshegðun eða vændi unglinga kom fram að það er meira um vændi meðal ungra karla en maður hefði haldið áður," segir Guðrún. "Við hjá Stígamótum náum miklu betur til karla en við héldum. Það er talið að strákar séu um 20 prósent barna, sem eru misnotuð og það lítur út fyrir að við náum þessum hópi jafnvel og konunum því að fimmtungur þeirra sem koma til okkar vegna sifjaspella eru karlmenn. Við höfum líka boðið upp á sjálfshjálparhóp fyrir karlmenn."
Fréttir Innlent Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Erlent Fleiri fréttir Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Sjá meira