Innlent

Ferjuhöfn til athugunar

Hafnarstjórn Faxaflóahafna hefur falið hafnarstjóra að kanna kosti þess að "Reykjavíkurhöfn verði að nýju ákjósanlegur viðkomustaður fyrir reglubundnar farþegasiglingar milli landa" og hafnaryfirvöldum falið að kanna með hvaða hætti væri hægt að taka á móti bílferjum. Tillaga þessa efnis frá Kjartani Magnússyni, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, var samþykkt á fundi hafnarstjórnar í apríl. Kjartan, sem sæti á í hafnarstjórn, segist lengi hafa haft áhuga á möguleikum farþegaflutinga sjóleiðis þó svo að borgin færi ekki út í annað en að skapa aðstöðu fyrir þá sem áhuga kynnu að hafa. Hann segir búið að skoða marga kosti sem mögulega ferjuhöfn, en helst komi til greina Grundartangahöfn eða Skarfabakki í Sundahöfn. "Eftir árið 2006 skapast góðir möguleikar til að gera þetta," sagði hann og sagði stefnt að samnýtingu ferjuhafnar og lægis fyrir skemmtiferðaskip. "Þetta er samt allt á athugunarstigi ennþá," sagði hann og taldi næsta skref vera að kynna Reykjavíkurhöfn erlendis sem áfangastað. "Ferjur verða sífellt hraðskreiðari og jafnvel hægt að komast frá Íslandi til meginlands Evrópu á rúmum tveimur sólarhringum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×