Innlent

Tvær plötur frá Bubba Morthens

Í dag er aldarfjórðungur frá því að Bubbi Morthens gaf út fyrstu plötu sína, Ísbjarnarblús. Í tilefni af því gefur Bubbi út tvær plötur með nýju efni í dag, samtals 23 lög. Tvennir tónleikar verða haldnir í Þjóðleikshúsinu í dag og tvennir á morgun til að fagna útgáfunni. " Ég er mjög sáttur við þessar viðtökur. Ég er mjög ánægður með að selja á ferna tónleika í röð í Þjóðleikhúsinu. Þetta verður bara gaman," segir Bubbi. "Ég mun halda áfram í fimmtíu ár til viðbótar. Síðustu 25 árin hafa verið ein samfelld veisla. Ég bjóst við því frá því að ég var sex ára gamall að verða það sem ég er í dag, ég efaðist aldrei," segir tónlistarmaðurinn sem samið hefur 470 lög á ferlinum og gefið út 35 sólóplötur. Bubbi vildi ekki segja neitt frekar um dagskrána hjá sér á afmælisdaginn því hann sagði að það myndi bara spilla partíinu. Morgunútvarpið á Talstöðinni milli klukkan 7 og 9 í dag verður helgað Bubba.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×