Innlent

Fjör á Norðfirði

Sjómannadagshátíðarhöldin í Neskaupstað byrjuðu að venju á föstudag með setningu Sjónes, stangveiðimóti þeirra Norðfirðinga sem sífellt fleiri sækja í. Það var líka ástæða til þess á föstudaginn því aflinn var um 17 tonn, á 37 stangir. Aflinn var þó heldur minni á laugardaginn. Hátíðarhöldin í gær voru svo með hefðbundnu sniði. Haldin var hátíðarguðsþjónusta en auk þess var efnt til kappróðurs, reiptogs og kappdráttar í björgunarstól. Færeyski kútterinn Johanna TG 326 setti svip sinn á bæjarlífið, margt fólk skoðaði skipið og þáði "beinakex" og sérstök sýning og fyrirlestur um siglingar færeyskra og íslenskra sjómanna, var í Jósafatssafni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×