Innlent

Hágengið þrengir að ferðaþjónustu

Fyrirtæki í ferðaþjónustu berjast í bökkum vegna hás gengis krónunnar. Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu-DMI, sem selur Þjóðverjum ferðir til Íslands, segir að fyrirtækin verðleggi þjónustu sína meira en ár fram í tímann. Því var verðskrá fyrirtækjanna kynnt í fyrrasumar þegar gengi evrunnar var miklu hærra en nú. "Þessi mismunur er það sem fyrirtækin þurfa að þola. Þau fá minni tekjur en reiknað var með þegar verðskrárnar voru gefnar út," segir hún. "Þetta hefur alvarlegar afleiðingar. Það er ekki mikil arðsemi í þjónustu og það er lítið svigrúm í verðlagningu til að skapa arð," sagði hún þegar hágengið og afleiðingar þess voru til umræðu í Hádegisútvarpinu á Talstöðinni á föstudag. "Það er ljóst að hágengið mun hafa mjög alvarlegar afleiðingar fyrir mörg fyrirtæki í ferðaþjónustu," bætti hún við og kvaðst telja ástandið nú hafa áhrif til verðhækkunar á næsta ári ef svo fer fram sem horfir. Það gæti aftur leitt til fækkunar ferðamanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×